Ertu undir 18 ára?

Sérstök leiðsögn fyrir ungmenni um að biðja um hjálp, trúnað og næstu skref.

Skoða leiðsögn fyrir undir 18 ára

FYRIR ÞIG · FRÆÐSLA OG VERKFÆRI

Fíkn og bati

Skoðaðu eigin stöðu, finndu verkfæri sem henta þér og undirbúðu næsta skref. Á þínum hraða og þínum forsendum.

Þín svör eru fyrir þig.

Þau eru ekki send til samtakanna. Án vistunar hverfa þau þegar þú endurhleður eða yfirgefur síðuna. Ekki skrá nöfn eða viðkvæmar upplýsingar um aðra.

Vistun er valfrjáls. Gögn sem eru vistuð eru ódulkóðuð og aðgengileg öðrum sem nota sama vafra. Þau samstillast ekki milli tækja.

BYRJAÐU ÞAR SEM ÞÚ ERT

Þú þarft ekki að hafa öll svörin.

Veldu kafla eða byrjaðu á fyrstu skrefunum. Hér eru 15 kaflar með fræðslu og valfrjálsri ígrundun. Þú mátt sleppa spurningum og koma aftur síðar.

Byrja á fyrsta kafla
01

Að skilja fíkn og bata

Manneskjan þarf aðstoð. Hugtökin eiga að hjálpa okkur að skilja stöðuna, án þess að skyggja á hana.

02

Ólíkar birtingarmyndir fíknivanda

Sameiginleg einkenni, ólík viðfangsefni. Hvernig neysla eða hegðun getur farið að ráða ferðinni.

03

Hvað gefur þetta mér og hvað kostar það?

Það má bæði upplifa tímabundinn létti og vera ósáttur við afleiðingarnar.

04

Gildi, sjálfsmynd og framtíð

Hvaða líf vil ég byggja upp? Lítil skref sem safnast upp, án þess að árangurinn ráði manngildinu.

05

Daglegt líf, ánægja og tilgangur

Að byggja upp líf með innihaldi, tengslum og hvíld — á þínum forsendum.

06

Þegar ekkert virðist skemmtilegt

Þolinmæði gagnvart líðaninni og lítil tækifæri til að uppgötva áhuga á ný.

07

Að gefa tilfinningum pláss

Þolinmæði, von og svigrúm til að velja viðbrögð — án þess að afneita líðaninni.

08

Þegar löngunin kemur

Bjargráð og stuðningur sem þú getur undirbúið áður en erfið stund kemur.

09

Hugsanir sem réttlæta neyslu

Að taka eftir hugsun áður en hún verður að ákvörðun. Eigin reynsla og ástæður fyrir bata sem viðmið.

10

Skömm, sektarkennd og sjálfsmynd

Að taka ábyrgð án þess að afskrifa sjálfan sig. Fyrirgefning, tengsl og ný reynsla af eigin getu.

11

Tengsl, einmanaleiki og mörk

Að eiga stað meðal annarra á eigin forsendum, í aðstæðum sem styðja bata og öryggi.

12

Traust og að bæta fyrir

Að taka ábyrgð án þess að ráða niðurstöðunni. Orð og hegðun sem fara saman yfir tíma.

13

Bakslag og aðdragandinn

Fyrri vinna hverfur ekki. Viðbrögð, stuðningur og lærdómur skipta máli núna.

14

Fólkið í stuðningsnetinu

Sameiginleg reynsla, sérhæfð ráðgjöf og fagleg meðferð geta sinnt ólíkum þörfum.

15

Hvaða leið vil ég kanna?

Aðgreinum þarfir, óskir og faglegt mat. Engin ein leið hentar öllum.

Efnið er fræðsla og ígrundun, ekki greining, meðferð eða neyðarþjónusta. Við bráða hættu: 112.

Kafli 1 af 15

Að skilja fíkn og bata

Manneskjan þarf aðstoð. Hugtökin eiga að hjálpa okkur að skilja stöðuna, án þess að skyggja á hana.

Í þessum kafla · 6 hlutar

Manneskjan á bak við fíknivandann

Hvort sem við notum orðið fíknivandi, fíkniröskun eða fíknisjúkdómur þurfum við að sjá manneskjuna og aðstoðarþörf hennar. Ekkert þessara hugtaka segir alla sögu einstaklingsins. Skoða þarf líkamlega og andlega heilsu, reynslu, tengsl og félagslegar aðstæður.

Fíkn tengist bæði efnum og hegðun

Fíknivandi getur tengst neyslu efna eða tiltekinni hegðun. Skaðleg og stjórnlaus mynstur geta meðal annars tengst áfengi, öðrum vímuefnum, fjárhættuspilum, klámnotkun eða áti. Þetta eru ekki allt sömu vandamál eða sömu greiningar. Átvandi þarf til dæmis viðeigandi mat og lausnin er ekki að hætta að borða. Hér skoðum við sameiginleg viðfangsefni, en aðstoð þarf að taka mið af hverjum vanda. Lestu nánar um áfengis- og vímuefnavanda og atferlisfíkn.

Algeng merki um fíknivanda

  • Þú finnur fyrir sterkri löngun eða hugsar oft um neysluna eða hegðunina.
  • Þér reynist erfitt að halda þig við þau mörk sem þú setur þér.
  • Neyslan eða hegðunin tekur meira pláss í lífinu en þú vilt og heldur áfram þótt hún hafi neikvæð áhrif.

Fíkn getur birst í sterkri löngun, síendurteknum hugsunum og erfiðleikum við að stjórna neyslu eða hegðun þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar. Hjá sumum hefur hún veitt tímabundinn létti frá vanlíðan eða innra tómi. Hjá öðrum hefur hún byrjað í félagslegum aðstæðum, forvitni eða leit að ánægju. Engin ein skýring á við um alla.

Ólíkur ferill, ólíkar þarfir

Það sem virtist vera lausn getur smám saman orðið að sjálfstæðum vanda. Heilsan, skapið, samskiptin, fjármálin eða daglegt líf geta orðið fyrir áhrifum. Ferillinn og hraðinn eru mismunandi. Þú þarft ekki að missa allt áður en þú leitar aðstoðar.

Bati sem uppbygging lífsins

Hjá Það er von leggjum við áherslu á bata sem uppbyggingu jafnvægis í lífinu, bæði andlega, líkamlega og félagslega. Við vinnum fyrst og fremst með fólki sem vill hætta skaðlegri neyslu eða breyta hegðun sem er farin að stjórna lífi þess. Batinn felur líka í sér að finna aðrar leiðir til að mæta þeim þörfum eða þeirri vanlíðan sem neyslan eða hegðunin hefur tímabundið létt á. Markmiðið er að byggja líf sem viðkomandi vill lifa og getur tekist á við án þess að leita sífellt aftur í gamla mynstrið.

Fleiri þættir en viljastyrkur

Líkamleg, andleg og félagsleg aðstoð getur farið saman. Sjálfsvinna þarf ekki að fara fram í einrúmi. Ráðgjöf, viðeigandi lyfjameðferð, sálfræðimeðferð og jafningjastuðningur geta verið hlutar bata. Markmiðið er ekki að finna aldrei fyrir vanlíðan eða löngun, heldur að geta mætt henni með fleiri leiðum og stuðningi.

Fara í æfinguna

Hvar er ég staddur?

Veldu það sem þú vilt skoða. Þetta er ígrundun, ekki greining eða próf á því hvort vandinn sé „nógu mikill“.

Hvað vil ég fá betri skilning á?
Hvar finn ég helst fyrir áhrifum?
Skoða mína samantekt

Kafli 2 af 15

Ólíkar birtingarmyndir fíknivanda

Sameiginleg einkenni, ólík viðfangsefni. Hvernig neysla eða hegðun getur farið að ráða ferðinni.

Í þessum kafla · 10 hlutar

Þegar neysla eða hegðun fer að ráða ferðinni

Atferlisfíkn lýsir fíknivanda sem tengist endurtekinni hegðun fremur en neyslu efnis. Hegðunin getur orðið sífellt meira ráðandi, reynst erfið viðureignar og haldið áfram þrátt fyrir skaðleg áhrif. Fjárhættuspilaröskun og tölvuleikjaröskun eru dæmi um viðurkenndar greiningar á þessu sviði. Önnur hugtök sem fólk notar um reynslu sína hafa mismunandi greiningarstöðu, eins og fjallað er um hér á eftir.

Fíknivandi tengist ekki eingöngu áfengi eða öðrum vímuefnum. Hann getur líka tengst ákveðinni hegðun. Þótt birtingarmyndirnar séu ólíkar geta sum viðfangsefnin verið sameiginleg: sterk löngun, minnkandi stjórn, aukin forgangsröðun neyslunnar eða hegðunarinnar og áframhald þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar.

Það sem byrjaði sem ánægja, spenna eða léttir getur smám saman tekið meira pláss í lífinu. Einstaklingurinn getur farið að gera eitthvað oftar, lengur eða í meira mæli en hann ætlaði sér og átt erfitt með að standa við eigin ákvarðanir um breytingar.

Þróunin er þó ekki alltaf stöðug aukning í magni eða tíðni. Vandinn getur líka falist í stjórnmissi og áhrifum á lífið, jafnvel þótt umfangið aukist ekki jafnt og þétt.

Hvenær erum við að tala um vanda?

Að hafa mikinn áhuga á einhverju eða gera það oft er ekki eitt og sér merki um fíkn. Mikilvægt er að skoða stjórn, afleiðingar og áhrif á daglega virkni.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, gefur út alþjóðlega flokkunarkerfið ICD-11 sem er meðal annars notað við greiningu heilbrigðisvanda. Í lýsingum þess á fjárhættuspila- og tölvuleikjaröskun er lögð áhersla á skerta stjórn, aukinn forgang hegðunarinnar og áframhald þrátt fyrir neikvæðar afleiðingar.

Manneskja getur því áttað sig á skaðanum og viljað breyta stöðunni, en samt átt erfitt með að stöðva mynstrið. Þekking á afleiðingunum nægir ekki alltaf ein og sér.

Hlutverk heilans: umbun, nám og hvöt

Heilinn lærir af reynslu. Það sem veitir ánægju, hefur mikilvægi fyrir okkur eða dregur úr óþægindum getur aukið líkurnar á að við leitum aftur í sömu athöfn.

Dópamín er eitt þeirra taugaboðefna sem koma að þessu ferli. Það tengist meðal annars hvöt, væntingum og því að læra hvaða áreiti eða athafnir sé þess virði að sækjast eftir. Hlutverk þess er því víðara en að framleiða vellíðan.

Þegar ákveðnar aðstæður tengjast ítrekað neyslu eða hegðun geta þær sjálfar farið að vekja löngun. Staður, sími, tímasetning, tilfinning eða manneskja getur orðið áminning um væntanlega umbun eða létti.

Dópamínlosun ein og sér skilgreinir þó ekki fíkn. Venjulegar og heilbrigðar athafnir tengjast líka umbunarkerfum heilans. Fíkn verður ekki útskýrð með einu taugaboðefni; fleiri kerfi tengd meðal annars streitu, námi og sjálfstjórn koma við sögu.

Þegar léttir viðheldur mynstrinu

Neysla eða hegðun getur haft fleiri en eitt hlutverk. Hún getur gefið ánægju og spennu, en einnig dregið tímabundið úr kvíða, einmanaleika, leiða eða öðrum óþægindum.

Hjá sumum verður hún leið til að deyfa það sem er erfitt að finna fyrir. Léttirinn er raunverulegur til skamms tíma, þótt afleiðingarnar geti síðar aukið vandann. Þannig getur myndast hringur: Vanlíðan eða löngun → neysla eða hegðun → tímabundinn léttir → afleiðingar → aukin þörf fyrir létti.

Innra tóm er ein leið sem fólk notar til að lýsa þessari reynslu. Það á þó ekki við um alla. Erfðir, þroski, heilsufar, félagslegt umhverfi, aðgengi og eiginleikar efna eða hegðunar geta haft áhrif á þróun vandans. Enginn einn þáttur skýrir hvers vegna tiltekinn einstaklingur þróar með sér fíkn.

Vímuefni

Áfengi og önnur vímuefni hafa bein efnafræðileg áhrif á heilann og líkamann. Áhrifin eru mismunandi eftir efnum, en þau geta meðal annars styrkt endurtekna neyslu og tengt ákveðnar aðstæður við löngun.

Með tímanum getur neyslan orðið síður tengd ánægju og meira því að komast hjá vanlíðan, fráhvörfum eða þeirri upplifun að geta ekki liðið eðlilega án hennar. Þetta gerist þó ekki með sama hætti hjá öllum og ekki allir sem nota vímuefni þróa með sér fíkn.

Hefurðu áhyggjur af eigin drykkju eða annarri neyslu? Skoðaðu fyrstu skref við áfengis- og vímuefnavanda.

Fjárhættuspil

Fjárhættuspil geta tengst spennu, væntingum um vinning og von um að næsta tilraun breyti stöðunni. Viðvarandi spilamennska getur síðan leitt til þess að meira fé og meiri tími fari í spilin þrátt fyrir fjárhagslegan, félagslegan eða annan skaða.

Rannsóknir hafa sýnt að niðurstöður þar sem einstaklingur virðist næstum hafa unnið geta aukið löngun til að halda áfram að spila, þótt enginn vinningur hafi fengist. Tilfinningin um að vera nálægt vinningi segir þó ekki að næsti vinningur sé líklegri.

Fjárhættuspilaröskun er viðurkennd greining. Þróun vandans tengist ekki eingöngu einstaklingnum; aðgengi, hraði spilanna, hönnun þeirra og markaðssetning skipta líka máli.

Klámnotkun og kynferðisleg hegðun

Sumir upplifa að klámnotkun eða önnur kynferðisleg hegðun verði stjórnlaus, taki óhóflegt pláss og haldi áfram þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar eða ítrekaðar tilraunir til breytinga.

Slíkur vandi getur fallið undir greininguna compulsive sexual behaviour disorder, sem lýsir viðvarandi erfiðleikum við að stjórna endurtekinni kynferðislegri hegðun. Hún er flokkuð sem hvatastjórnunarröskun í ICD-11, fremur en sem sjálfstæð greining sem heitir klámfíkn.

Mikil kynhvöt eða tíð klámnotkun nægir ekki ein og sér til greiningar. Vanlíðan sem stafar eingöngu af siðferðilegri fordæmingu eigin kynferðislegra langana eða hegðunar nægir heldur ekki. Þess vegna þarf að skoða hvað veldur vandanum og hvaða aðstoð hentar, án þess að skömm verði mælikvarðinn á hvort röskun sé til staðar.

Matur og át

Fólk getur upplifað sterka löngun í mat, stjórnmissi við át og endurtekið mynstur sem veldur vanlíðan. Sumir lýsa þessu sem matarfíkn. Hugtakið er notað í rannsóknum, en það er ekki það sama og að öll slík reynsla falli undir eina viðurkennda fíknigreiningu.

Lotuofát er dæmi um viðurkennda átröskun þar sem einstaklingur upplifir stjórnmissi í endurteknum átköstum. Líffræðilegir, sálrænir og félagslegir þættir geta tengst vandanum.

Matur er lífsnauðsynlegur. Markmiðið getur því ekki verið að hætta að borða. Vandi tengdur áti þarf viðeigandi mat og aðstoð sem tekur mið af næringu, heilsu og sambandi við mat, fremur en að yfirfæra sjálfkrafa allar aðferðir frá meðferð vímuefnafíknar.

Ástarfíkn og erfið tengslamynstur

Orðið ástarfíkn er stundum notað um viðvarandi upptekni af sambandi, mikla þörf fyrir staðfestingu eða endurtekin tengslamynstur sem valda skaða og erfitt er að breyta.

Þessi reynsla getur verið mjög sársaukafull. Fræðileg skilgreining og greiningarstaða hugtaksins eru þó ekki jafn skýrar og til dæmis þegar um fjárhættuspilaröskun er að ræða. Rannsóknir skoða meðal annars tengsl við tengslamynstur og tilfinningastjórnun, en ekki er rétt að gera ráð fyrir að vandinn sé einfaldlega fíkn í dópamín frá annarri manneskju.

Sterk ást, ástarsorg eða ótti við að missa samband er ekki sjálfkrafa fíkn. Meta þarf mynstrið, áhrif þess og þarfir viðkomandi.

Sameiginleg viðfangsefni — ólíkar leiðir til aðstoðar

Þótt hugtök og greiningar séu mismunandi getur fólk átt sameiginlega reynslu af stjórnmissi, löngun og því að halda áfram einhverju sem það sér að skaðar líf þess.

Við þurfum bæði að skilja mynstrið og hlutverkið sem það gegnir: Hvað gefur þetta manneskjunni? Hvað tekur það frá henni? Hvaða líðan, aðstæður eða þarfir þarf að vinna með samhliða breytingunni?

Óvissa um rétt heiti á vandanum á ekki að koma í veg fyrir að fólk leiti aðstoðar. Jafnframt þarf aðstoðin að taka mið af viðfangsefninu. Sameiginleg einkenni þýða ekki að öll vandamál hafi sömu orsök eða að ein meðferðarleið henti öllum.

Heimildir og nánara efni
Fara í æfinguna

Hvað vil ég kanna frekar?

Þessi kafli er fræðilegur grunnur. Hér er ekkert greiningarpróf. Þú mátt skrifa spurningu til að taka með í samtal eða halda áfram án þess að svara.

Spurningar sem ég vil taka með mér

Þegar þú skrifar svör birtast valin atriði hér. Engin stig eða mat eru reiknuð.

Skoða mína samantekt

Kafli 3 af 15

Hvað gefur þetta mér og hvað kostar það?

Það má bæði upplifa tímabundinn létti og vera ósáttur við afleiðingarnar.

Taktu eigin upplifun alvarlega

„Ég nota af því að mér líður betur.“ Ef það er þín upplifun þurfum við að taka hana alvarlega. Neyslan eða hegðunin getur veitt tímabundinn létti eða ánægju. Það er lítið gagn í að rökræða þá upplifun burt. Við þurfum frekar að skoða alla myndina: Hvað gerist á meðan, hvað gerist eftir á og hvaða áhrif hefur þetta á lífið þitt?

Skoðum fleiri hliðar

Er allt í lífinu eins og þú vilt hafa það? Er eitthvað sem þú vildir bæta? Myndi það hafa einhver góð áhrif að hætta neyslunni eða breyta hegðuninni? Eru hliðarnar eingöngu jákvæðar eða fylgir þessu líka kostnaður?

Þetta eru spurningar sem þú þarft að fá rými til að svara sjálfur. Tilgangurinn er að þú getir vegið og metið eigin reynslu frá fleiri sjónarhornum en tímabundinni vellíðan einni saman.

Þú þarft ekki að hafa ákveðið allt

Samtalið þarf ekki að byrja á rökræðu um hvort þú eigir að hætta. Það getur byrjað á því hvað þú vilt fá út úr lífinu og hvort núverandi mynstur hjálpi þér að komast þangað. Óvissa útilokar ekki stuðning. Þú mátt leita aðstoðar til að skoða stöðuna áður en þú hefur ákveðið næstu skref.

Fara í æfinguna

Skoða heildarmyndina

Engin stig eru reiknuð. Svörin eiga að hjálpa þér að sjá fleiri en eina hlið á eigin reynslu.

Skoða mína samantekt

Kafli 4 af 15

Gildi, sjálfsmynd og framtíð

Hvaða líf vil ég byggja upp? Lítil skref sem safnast upp, án þess að árangurinn ráði manngildinu.

Í þessum kafla · 9 hlutar

Hvaða líf vil ég byggja upp?

Bati getur byrjað á því að vilja komast frá neyslu eða hegðun sem veldur skaða. Með tímanum verður líka mikilvægt að skoða hvað við viljum stefna að.

Hvers konar lífi langar mig að lifa? Hvernig manneskja vil ég vera? Hvað skiptir mig máli og hvers vegna?

Þú þarft ekki að hafa skýra framtíðarsýn frá fyrsta degi. Hún getur mótast smám saman. En það getur gefið daglegum ákvörðunum merkingu að finna eitthvað sem þú vilt byggja upp og vernda.

Gildi gefa stefnu, markmið gefa viðfangsefni

Gildi lýsa því hvernig þú vilt lifa og koma fram. Þau geta til dæmis verið heiðarleiki, umhyggja, sjálfstæði, forvitni eða ábyrgð.

Markmið er eitthvað afmarkað sem þú vinnur að. Ef nám og forvitni skipta þig máli gæti markmiðið verið að ljúka námskeiði. Ef tengsl skipta máli gæti það verið að verja reglulega tíma með einhverjum sem þér þykir vænt um.

Þú getur náð ákveðnu markmiði og sett þér annað. Gildið getur áfram vísað þér leið. Mikilvægt er að þetta hafi merkingu fyrir þig. Markmið sem lítur vel út í augum annarra gefur þér ekki endilega þá stefnu sem þú þarft.

Dagur sem hægt er að endurtaka

Við þurfum ekki að sigra heiminn í dag. Gagnlegri spurning getur verið: „Hvernig lítur dagur út sem styður lífið sem ég vil byggja upp?“

Það gæti verið dagur þar sem þú sinnir grunnþörfum, mætir í vinnu eða nám, hreyfir þig við hæfi, hefur samband við einhvern eða vinnur örlítið að áhugamáli.

Ef þú endurtekur slíkar athafnir yfir tíma getur eitthvað safnast upp: þekking, færni, tengsl, stöðugleiki eða meira traust á sjálfum þér.

Ekki verður hver dagur betri en sá á undan. Framfarir geta verið hægar, ójafnar og stundum ósýnilegar um tíma. Þess vegna þarf dagurinn að vera viðráðanlegur og rúma hvíld og aðlögun, ekki aðeins kröfur um meiri afköst.

Að sjá það sem hefur byggst upp

Það getur verið erfitt að meta eigið líf þegar líðanin er eini mælikvarðinn. Á erfiðum degi getur okkur fundist ekkert hafa breyst, þótt við höfum í raun tekið mikilvæg skref.

Þá getur hjálpað að hafa eitthvað áþreifanlegt til að líta til: Ég sinni áhugamálinu mínu reglulegar. Ég hef lært eitthvað sem ég kunni ekki áður. Ég hef staðið við fleiri samkomulög. Ég leita fyrr stuðnings þegar mér líður illa. Ég hef byggt upp meiri stöðugleika í daglegu lífi. Ég gef mér oftar tíma fyrir fólk sem skiptir mig máli.

Þetta þarf ekki allt að vera tölulegt. Það getur líka verið skýr lýsing á breytingu sem þú eða traustur viðmælandi tekur eftir.

Líðanin og framfarirnar mega báðar vera sannar

Að sjá framfarir á ekki að nota til að segja þér að þú hafir enga ástæðu til að líða illa.

Þú getur verið að byggja upp gott líf og samt upplifað sorg, kvíða, þreytu eða áhugaleysi. Árangur útilokar ekki að þú þurfir stuðning eða aðstoð.

Spurningarnar geta staðið hlið við hlið: „Hvað hefur gengið fram á við?“ og „Hvernig líður mér og hvað þarf ég núna?“ Þannig fáum við heildstæðari mynd en ef við skoðum eingöngu líðanina eða eingöngu það sem hefur áunnist.

Áhugamál sem sýna okkur framfarir

Kraftlyftingar eru dæmi um áhugamál þar sem hægt er að sjá þróun yfir tíma. Einstaklingur getur tekið eftir meiri styrk, betri tækni eða aukinni færni við að fylgja raunhæfri áætlun.

Fyrir annan getur sama reynsla falist í að læra á hljóðfæri, sinna garði, ljúka handverksverkefni eða verða öruggari í nýju viðfangsefni.

Mikilvæga atriðið er að finna eitthvað sem hefur merkingu fyrir þig, er aðgengilegt og hægt er að stunda af skynsemi. Áhugamálið þarf ekki að verða keppni eða sífellt stærra verkefni til að vera verðmætt.

Hreyfing sem hluti af lífinu

Hreyfing getur verið leið til líkamlegrar útrásar, ánægju, samveru og þess að upplifa eigin getu. Fyrir suma er líkamlega útrásin sérstaklega mikilvæg.

Hreyfingin þarf að taka mið af heilsu, getu, áhuga og aðstæðum. Hún getur verið ganga, dans, sund, styrktarþjálfun eða önnur virkni sem hentar viðkomandi.

Markmiðið er að hún styðji lífið og batann. Hvíld, sveigjanleiki og að geta dregið úr álagi þegar þarf eru líka hlutar af því að sinna sér.

Sjálfsvirðið er ekki árangurstafla

Það getur styrkt sjálfsmyndina að sjá hvað þú hefur byggt upp. Þú ert þó ekki meira virði vegna þess að þú lyftir þyngra, eignast fjölskyldu, lýkur námi eða nærð ákveðnum tekjum.

Slíkir áfangar geta haft mikla persónulega merkingu. Þeir eru ekki skilyrði fyrir því að eiga rétt á virðingu, stuðningi eða góðu lífi.

Þegar markmið næst ekki, heilsan breytist eða þú þarft að taka skref til baka má endurskoða áætlunina. Þú þarft ekki að endurskoða manngildi þitt.

Framtíð sem byrjar í litlu skrefi

Framtíðarsýn þarf ekki að vera fullmótuð mynd af lífinu eftir tíu ár. Hún getur byrjað á einu atriði sem þú vilt hafa öðruvísi og einni athöfn sem styður það.

Með tímanum geturðu litið til baka og séð: „Ég hef ekki aðeins haldið mig frá því sem skaðaði mig. Ég hef líka byggt upp eitthvað sem skiptir mig máli.“

Það getur orðið persónuleg ástæða til að halda áfram.

Heimildir og nánara efni
  • SAMHSA — Tilgangur og persónulegar leiðir í bata

    Bandarísk stofnun um geðheilbrigði og fíknivanda: sjálfsákvörðun, tilgangur og merkingarbærar daglegar athafnir.

  • WHO — Hreyfing

    Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin tekur saman rannsóknir um hreyfingu, andlega heilsu og svefn. Áhrifin eru ekki einfölduð niður í losun eins taugaboðefnis.

Fara í æfinguna

Mín stefna og dagurinn í dag

Ekki þarf að hafa öll svörin. Veldu eitt viðfangsefni sem skiptir þig máli núna. Samantektin gefur ekki einkunn fyrir bata.

Hvað vil ég fá meira pláss fyrir?

Þú mátt líka vera að kanna hvað skiptir þig máli.

Til dæmis heiðarleiki, umhyggja, ábyrgð, forvitni eða sjálfstæði.

Hvað þarf að taka tillit til varðandi heilsu, tíma, orku eða fjármagn?

Það má vera tala, færni, venja eða dæmi úr daglegu lífi.

Mín stefna í stuttu máli

Þegar þú skrifar svör birtast valin atriði hér. Engin stig eða mat eru reiknuð.

Skoða mína samantekt

Kafli 5 af 15

Daglegt líf, ánægja og tilgangur

Að byggja upp líf með innihaldi, tengslum og hvíld — á þínum forsendum.

Grunnurinn þarf athygli

Svefn, næring og hreyfing eru grunnþættir sem mikilvægt er að sinna. Markmiðið er að skapa venjur sem styðja líðan og jafnvægi. Þær þurfa að vera raunhæfar miðað við aðstæður þínar og mega byggjast upp smám saman. Bati krefst ekki fullkominnar rútínu.

Hvað finnst þér skemmtilegt?

Það þarf að vera eitthvað sem vekur áhuga og veitir ánægju. Enginn annar getur ákveðið fyrir þig hvað það á að vera. Einn hefur gaman af klifri, annar af tónlist, handverki, göngum eða því að læra eitthvað nýtt. Hvað hefur þú áður haft áhuga á? Hvað langar þig að prófa?

Raunhæft og endurtakanlegt

Prófaðu að skipuleggja einn dag með þremur viðráðanlegum atriðum. Hvað ætlarðu að gera fyrir grunnþarfirnar? Hvað gefur deginum ánægju eða innihald? Við hvern geturðu verið í sambandi? Dæmi gæti verið að borða á reglulegum tímum, fara í stutta göngu og hringja í vin. Veldu athafnir sem henta þér og aðlagaðu álagið að orku og aðstæðum.

Hvað er aðgengilegt miðað við tíma, fjármagn, orku og færni? Hvað gætirðu hugsað þér að gera aftur eftir að nýjabrumið hverfur? Að prófa eitthvað og komast að því að það hentar ekki er líka leið til að kynnast sjálfum sér.

Tilgangur og þátttaka

Það getur skipt miklu að hafa eitthvað að gera sem hefur tilgang. Það getur verið nám, vinna, sköpun, fjölskyldulíf eða að gera eitthvað fyrir aðra. Að leggja einhverjum lið getur fært athyglina út fyrir eigin vanda og gefið okkur þá reynslu að framlag okkar skipti máli.

Hvað gætir þú gert sem væri gagnlegt fyrir einhvern annan og raunhæft fyrir þig? Það þarf ekki að vera stórt verkefni. Þú þarft heldur ekki að vinna þér inn manngildi með því að vera alltaf til taks.

Meira en að halda út

Það er erfitt að vera í fullu starfi við það eitt að reyna að halda sér edrú. Ef dagurinn fer í að hanga, bíða og reyna að nota ekki vantar eitthvað sem gefur honum innihald.

Við þurfum því líka að spyrja: Hvað ætla ég að gera í dag? Hvað hefur merkingu fyrir mig? Hvað langar mig að byggja upp? Þetta snýst ekki um að fylla hverja mínútu. Það snýst um að eiga líf með áhuga, tengslum, tilgangi og hvíld.

Fara í æfinguna

Dagurinn minn

Veldu lítið skref sem er raunhæft þessa vikuna. Hér er enginn fullkominn dagskrárrammi sem allir þurfa að fylgja.

Hvaða grunnvenju vil ég sinna fyrst?
Skoða mína samantekt

Kafli 6 af 15

Þegar ekkert virðist skemmtilegt

Þolinmæði gagnvart líðaninni og lítil tækifæri til að uppgötva áhuga á ný.

Upphafið getur verið erfitt

Í upphafi edrúmennsku getur verið erfitt að finna ánægju, áhuga eða drifkraft. Hlutir sem áður voru skemmtilegir geta virst flatir. Það þarf ekki að segja til um hvernig þér muni líða til lengri tíma.

Aðlögun tekur tíma

Langvarandi vímuefnaneysla getur haft áhrif á umbunarkerfi heilans og getu til að upplifa ánægju af hversdagslegum hlutum. Aðlögun eftir neyslu getur tekið tíma og er ólík milli einstaklinga. Þessi skýring lýsir ekki endilega allri vanlíðan eða öllum tegundum fíknivanda.

Gefðu þér tækifæri til að prófa

Það er skiljanlegt að áhuginn sé lítill til að byrja með. En við þurfum líka að spyrja: Hvað hef ég prófað? Hvað er ég að gera til að finna eitthvað skemmtilegt án neyslu? Er ég að gefa einhverju tækifæri eða bíða ég eftir að áhuginn komi af sjálfu sér?

Þú þarft ekki að finna mikinn eldmóð áður en þú prófar. Byrjaðu á einhverju viðráðanlegu og gefðu þér tækifæri til að kynnast því. Kannski kviknar áhugi, kannski kemstu að því að þetta hentar ekki. Hvort tveggja hjálpar þér að finna þína leið.

Lífið þarf ekki alltaf að vera skemmtilegt

Líf án neyslu inniheldur líka bið, skyldur og tímabil þar sem áhuginn er lítill. Markmiðið er ekki stöðug vellíðan heldur að skapa pláss fyrir ánægju, tengsl, tilgang og hvíld samhliða erfiðleikum lífsins.

Þegar þarf meiri aðstoð

Viðvarandi áhugaleysi eða vanlíðan á ekki að afgreiða sem eitthvað sem þú eigir bara að þola. Ef líðanin er mikil, versnar eða gerir þér erfitt að sinna daglegu lífi skaltu ræða við heilbrigðisstarfsfólk. Þú mátt bæði gefa bataferlinu tíma og fá aðstoð á meðan.

Fara í æfinguna

Ein tilraun í þessari viku

Engin krafa er um að hafa skemmt sér. Markmiðið er að gefa sér tækifæri og skoða eigin reynslu af forvitni.

Skoða mína samantekt

Kafli 7 af 15

Að gefa tilfinningum pláss

Þolinmæði, von og svigrúm til að velja viðbrögð — án þess að afneita líðaninni.

Þegar við viljum breyta líðaninni strax

Þegar okkur líður illa getur komið sterk þörf fyrir að breyta líðaninni strax. Fyrir þann sem hefur vanist því að leita léttis í neyslu eða ákveðinni hegðun getur verið erfitt að ímynda sér aðra leið.

Samt þarf ekki að bregðast strax við hverri tilfinningu. Við getum lært að taka eftir henni, gefa henni pláss og skoða hvað við þurfum áður en við ákveðum hvað við gerum.

Líðanin núna er ekki öll framtíðin

Svona líður þér núna. Það þýðir ekki að þér muni alltaf líða svona. Tilfinningar breytast: þær geta verið sterkar eina stundina, dvínað og komið aftur. Þegar okkur líður illa getur verið erfitt að muna þetta. Þá skiptir máli að eiga von um að líðanin geti orðið önnur og gefa sér tíma og stuðning til að komast í gegnum stundina.

Þá getur hjálpað að minna sig á: „Svona líður mér núna. Ég þarf ekki að ákveða út frá þessari stund hvernig allt lífið verður.“

Við getum ekki lofað ákveðnum tíma þar til líðanin léttist. Við getum hins vegar gefið okkur svigrúm, leitað stuðnings og unnið með það sem hefur áhrif á okkur.

Að viðurkenna er ekki að afneita eða gefast upp

Það er ekki raunhæft markmið að koma í veg fyrir alla sorg, reiði, ótta eða vonbrigði. Þessar tilfinningar geta fylgt því sem skiptir okkur máli og aðstæðum sem eru raunverulega erfiðar.

Að leyfa sér að finna til þýðir ekki að samþykkja allar aðstæður eða gera ekkert í þeim. Við getum bæði viðurkennt líðanina og spurt: Hvað hefur gerst og hvaða áhrif hefur það á mig? Er eitthvað sem ég get breytt eða þarf að bregðast við? Hvað fæ ég ekki breytt, þótt ég vildi óska þess? Hvaða stuðning þarf ég til að takast á við þetta?

Stundum þarf að leysa vandamál, setja mörk eða fara úr aðstæðum. Stundum þarf að vinna úr reynslu. Og stundum þurfum við fyrst og fremst tíma og einhvern með okkur.

Þolinmæði í litlum skrefum

Þolinmæði þarf ekki að þýða að sitja einn með yfirþyrmandi líðan. Hún getur falist í að fresta viðbragði, tala við einhvern eða nota bjargráð sem hjálpar okkur í gegnum stundina án þess að skapa nýjan vanda.

Við getum æft okkur í að segja: „Þetta er erfitt. Ég má finna fyrir þessu. Hvað gæti hjálpað mér að komast í gegnum næstu stund?“

Að leita sér aðstoðar er hluti af þessari vinnu. Viðvarandi eða yfirþyrmandi vanlíðan þarf ekki að þola í einrúmi. Markmiðið er að fjölga leiðunum sem við höfum til að mæta líðaninni og byggja upp traust á því að við getum fengist við hana með stuðningi.

Heimildir og nánara efni
Fara í æfinguna

Staldra við áður en ég bregst við

Veldu líðan sem þú treystir þér til að skoða núna. Þú mátt sleppa spurningum, gera hlé eða fá einhvern með þér. Æfingin krefst ekki þess að líðanin hverfi.

Líðanin mín og næsta skref

Þegar þú skrifar svör birtast valin atriði hér. Engin stig eða mat eru reiknuð.

Skoða mína samantekt

Kafli 8 af 15

Þegar löngunin kemur

Bjargráð og stuðningur sem þú getur undirbúið áður en erfið stund kemur.

Daglegt líf og viðbragðsáætlun

Áhugamál og daglegt skipulag eru mikilvæg, en koma ekki í stað áætlunar fyrir erfiðar stundir. Hugsaðu fyrir fram um hvað þú getur gert þegar löngun til neyslu eða skaðlegrar hegðunar kemur. Þú þarft ekki að ákveða allt þegar álagið er mest.

Við hvern get ég haft samband?

Veldu manneskju sem hlustar, er hreinskilin og styður markmið þín. Það getur verið vinur, jafningi eða fagaðili. Ræddu fyrir fram hvort og hvenær viðkomandi er tiltækur. Hafðu aðra leið ef ekki næst í fyrsta tengilið.

Færa athyglina um stund

Þú getur prófað skynjunaræfingu með því að nefna fimm hluti sem þú sérð, fjóra sem þú finnur fyrir með snertingu, þrjú hljóð sem þú heyrir, tvær lyktir og eitt bragð. Gefðu þér tíma til að taka eftir hverju atriði. Aðlagaðu æfinguna að skynjun þinni og aðstæðum. Tilgangurinn er að beina athyglinni að því sem er í kringum þig um stund.

Önnur bjargráð geta verið að hringja í traustan viðmælanda, fara úr aðstæðum sem vekja löngun, hreyfa sig við hæfi eða fara á stuðningsfund. Skráðu fleiri en eina leið svo þú hafir næsta skref ef fyrsta bjargráðið dugar ekki.

Göngutúr, hreyfing við hæfi eða einföld skynjunaræfing getur verið leið til að beina athyglinni að öðru um stund. Þetta er ekki krafa um að löngunin hverfi. Veldu það sem hentar þér og slepptu æfingu sem veldur óþægindum.

Næsta skref ef þetta dugar ekki

Ef eitt bjargráð dugar ekki þarf annað skref að vera tiltækt. Það getur verið að fara úr aðstæðum, leita til annars tengiliðar eða fá meiri faglegan stuðning. Fundur eða bókað viðtal getur stutt áframhaldandi bata, en leysir ekki bráða hættu.

Öryggi fyrst

Þessi fræðsla er ekki neyðarþjónusta. Við bráða hættu á að hringja í 112. Fráhvarf frá sumum efnum, meðal annars áfengi og róandi lyfjum, getur verið hættulegt og þarfnast læknisfræðilegs mats. Ekki nota æfingarnar sem leiðbeiningar um afeitrun.

Fara í æfinguna

Mín viðbragðsáætlun

Þú getur notað hlutverk eða upphafsstafi í stað nafna. Ekki er nauðsynlegt að skrá símanúmer eða viðkvæmar upplýsingar.

VALFRJÁLS ATHYGLISÆFING

Taktu eftir því sem er í kringum þig

Hafðu augun opin ef það hentar. Þú mátt breyta æfingunni eða sleppa henni. Ekki gera hana við akstur.

Þú ræður hraðanum.

Skoða mína samantekt

Kafli 9 af 15

Hugsanir sem réttlæta neyslu

Að taka eftir hugsun áður en hún verður að ákvörðun. Eigin reynsla og ástæður fyrir bata sem viðmið.

Í þessum kafla · 7 hlutar

Þegar áhætta fer að virðast vera góður kostur

„Bara einu sinni.“ „Ég á þetta skilið.“ „Núna verður þetta öðruvísi.“ „Ég er búinn að vera svo lengi í góðu jafnvægi að ég hlýt að ráða við þetta.“

Slíkar hugsanir geta komið upp þegar við höfum ákveðið að halda okkur frá neyslu eða breyta skaðlegri hegðun. Þær geta látið það sem áður var skýr áhætta virðast skyndilega vera góður eða viðráðanlegur kostur.

Að fá hugsun er þó ekki það sama og að samþykkja hana eða ákveða að fylgja henni.

Þegar réttlætingin fer að taka meira pláss

Orðið fallbraut er hér notað um aðdraganda bakslags, sem við skoðum nánar síðar í fræðsluleiðinni: breytingar á líðan, hugsunum, venjum og aðstæðum sem geta aukið hættuna á að fara aftur í neyslu eða skaðlegt mynstur.

Ítrekaðar réttlætingarhugsanir geta verið hluti af þeirri fallbraut. Við förum kannski að rifja upp ánægjuna en sleppa afleiðingunum úr myndinni. Eða leitum að undantekningu sem gerir ákvörðunina um að halda okkur frá hegðuninni óþarfa í þetta eina skipti.

Þá er gagnlegt að taka eftir breytingunni: „Ég er farinn að leita að rökum fyrir einhverju sem ég hafði ákveðið að gera ekki. Hvað er að gerast hjá mér núna?“

Þetta er tækifæri til að bregðast við og fá stuðning. Hugsunin ein þýðir ekki að bakslag sé óumflýjanlegt.

Ég þarf ekki að fylgja öllum hugsunum mínum

Hugsanir geta verið mótsagnakenndar, freistandi eða óþægilegar. Þær geta komið án þess að við höfum valið þær.

Markmiðið er ekki að banna ákveðnar hugsanir eða vera stöðugt á verði gagnvart sjálfum sér. Það er að verða betur meðvitaður um það sem fer í gegnum hugann og skapa svigrúm áður en við bregðumst við.

Þú getur til dæmis tekið eftir: „Ég er að hugsa að ég eigi þetta skilið.“ Þannig ertu að lýsa hugsuninni í stað þess að meðhöndla hana strax sem staðreynd eða fyrirmæli. Næsta spurning getur verið: „Hvað á ég í raun skilið núna? Hvíld? Ánægju? Stuðning? Og hvaða leið hjálpar mér án þess að leiða mig aftur í þann vanda sem ég er að vinna mig úr?“

Að muna alla söguna

Réttlætingin getur byggst á einhverju sem er satt að hluta. Neysla eða hegðun hefur kannski veitt ánægju, spennu eða tímabundinn létti. Það þarf ekki að afneita þeirri reynslu.

En hvað gerðist svo? Hvernig þróaðist þetta þegar tíminn leið? Hvað varð um mörkin sem þú ætlaðir að halda? Hvaða áhrif hafði þetta á líðanina, tengslin og lífið sem þú vildir lifa?

Að skoða alla söguna hjálpar þér að meta hugsunina út frá eigin reynslu. Tilgangurinn er að sjá heildarmyndina, án þess að niðurlægja þig fyrir fortíðina.

Hvers vegna vel ég þessa leið?

Það getur verið auðveldara að mæta réttlætingarhugsunum þegar þú hefur skýrt fyrir sjálfum þér hvers vegna þú vilt breytingu. Ástæðurnar þurfa að hafa merkingu fyrir þig. Þær geta snúist um heilsu, tengsl, frelsi, sjálfsvirðingu eða möguleikann á að lifa ákveðnu lífi.

Eigin niðurstaða gæti hljómað svona: „Ég gæti upplifað tímabundna ánægju, en reynslan mín segir mér að ég get ekki haldið áfram þessari neyslu og lifað um leið því lífi sem ég vil lifa.“

Þá verður svarið við hugsuninni „kannski verður þetta öðruvísi“ tengt einhverju sem þú hefur sjálfur skoðað og komist að niðurstöðu um.

Þú þarft þó ekki að finna fullkomna vissu eða vera laus við alla togstreitu áður en þú getur tekið skref í átt að bata. Þetta er líka eitthvað sem má vinna með í ráðgjöf og stuðningi.

Að halda eigin ástæðum lifandi

Það getur hjálpað að skrifa niður ástæðurnar fyrir breytingunni og rifja þær upp reglulega. Hvað viltu vernda? Hvað hefur batnað? Hvert viltu stefna?

Jafningjastuðningur, til dæmis á tólf spora fundum eða í öðrum stuðningshópum, getur verið ein leið til að halda þessari meðvitund lifandi. Að hlusta á reynslu annarra og segja frá eigin stöðu getur hjálpað okkur að þekkja mynstur og muna hvers vegna við hófum þessa vinnu.

Stuðningurinn getur bæði minnt á það sem við viljum komast frá og sýnt það sem við getum byggt upp.

Ekki láta þetta verða einmana rökræðu

Ef þú tekur eftir að sömu réttlætingarnar koma aftur og aftur skaltu grípa til viðbragðsáætlunarinnar þinnar.

Þú getur sagt við traustan viðmælanda: „Ég er farinn að hugsa að ég gæti notað aftur. Mig langar að ræða það áður en ég geri eitthvað.“

Þú þarft ekki að vinna rökræðuna einn inni í höfðinu á þér. Að segja hugsunina upphátt, skoða hana með öðrum og velja eitt skref sem styður batann getur verið leið til að grípa inn í aðdragandann.

Heimildir og nánara efni
Fara í æfinguna

Hugsunin, reynslan mín og næsta skref

Veldu hugsun sem þú þekkir. Ekki þarf að rifja upp neyslu í smáatriðum. Ef æfingin eykur löngun eða vanlíðan má gera hlé og leita stuðnings.

Hvaða hugsun þekki ég?

Til dæmis: „Ég tek eftir þessari hugsun. Ég þarf ekki að fylgja henni. Ég ætla að tala við einhvern áður en ég tek ákvörðun.“

Til dæmis að hafa samband, fara úr áhættusömum aðstæðum, nota viðbragðsáætlunina eða fá meiri ráðgjöf.

Mín áminning

Þegar þú skrifar svör birtast valin atriði hér. Engin stig eða mat eru reiknuð.

Skoða mína samantekt

Kafli 10 af 15

Skömm, sektarkennd og sjálfsmynd

Að taka ábyrgð án þess að afskrifa sjálfan sig. Fyrirgefning, tengsl og ný reynsla af eigin getu.

Í þessum kafla · 12 hlutar

Að horfast í augu við fortíðina

Í bata getur komið að því að horfast í augu við hluti sem við sjáum eftir. Við höfum kannski sært fólk, brugðist trausti, brotið af okkur eða farið illa með eigið líf. Sumir hafa afplánað refsingu og þurfa að byggja lífið upp með afleiðingar fortíðarinnar í farteskinu.

Við getum líka borið skömm vegna þess sem hefur verið gert okkur, vegna höfnunar eða þeirra viðhorfa sem við höfum mætt. Skömm er því ekki sönnun þess að við höfum gert eitthvað rangt.

Þegar við vinnum með þessa reynslu skiptir máli hvernig við tölum við okkur sjálf og hvaða merkingu við gefum því sem hefur gerst.

Skömm og óttinn við að missa tengsl

Brené Brown er bandarískur rannsakandi og prófessor við Háskólann í Houston. Hún er menntuð í félagsráðgjöf og hefur í meira en tvo áratugi rannsakað meðal annars skömm, berskjöldun, hugrekki og samkennd. Hún hefur miðlað þeirri vinnu í bókum og fyrirlestrum, meðal annars TED-fyrirlestrunum The Power of Vulnerability og Listening to Shame.

Við vísum til hennar hér vegna þess að aðgreining hennar á skömm og sektarkennd hjálpar okkur að skoða muninn á því að taka ábyrgð á eigin gjörðum og að dæma eigið manngildi.

Brown lýsir skömm meðal annars sem ótta við að missa tengsl við annað fólk. Í þeirri upplifun getur falist ótti við að ef aðrir þekktu ákveðna hlið á okkur eða sögu okkar myndu þeir telja okkur óverðug ástar og þess að tilheyra. Þá snýst hugsunin ekki aðeins um að við höfum gert eitthvað rangt. Hún getur orðið: „Ef þau vissu þetta um mig myndu þau ekki vilja mig lengur.“

Brown tengir þörfina fyrir að tilheyra við það að manneskjan er félagsvera. Frá þróunarlegu sjónarhorni hefur samvinna og stuðningur hópsins haft mikla þýðingu fyrir afkomu okkar. Að missa vernd og tengsl við hópinn gat því verið alvarleg ógn. Þetta sjónarhorn getur hjálpað okkur að skilja hvers vegna ótti við höfnun getur orðið svo sterkur. Það er ekki yfirborðslegt að vilja eiga stað meðal annarra.

Skömmin getur þó sagt okkur að við séum óverðug tengsla án þess að það sé satt. Að finna fyrir henni er ekki sönnun þess að við eigum ekki rétt á ást, virðingu eða stuðningi.

Munurinn á verknaðinum og sjálfinu

Brown gerir greinarmun á sektarkennd, sem beinist að því sem við höfum gert eða látið ógert, og skömm, sem beinist að sjálfinu og þeirri tilfinningu að við séum ekki verðug tengsla eða viðurkenningar.

Sektarkennd: „Ég gerði eitthvað rangt. Ég sé eftir því og þarf að skoða hvernig ég tek ábyrgð.“

Skömm: „Það er eitthvað að mér. Ég er óverðugur og get aldrei orðið öðruvísi.“

Fyrri hugsunin gefur okkur afmarkað viðfangsefni: verknað, afleiðingar og möguleg viðbrögð. Sú síðari getur orðið að dómi um alla manneskjuna.

Hugsum okkur að þú hafir lofað vini að mæta en látir ekki sjá þig og svarir ekki skilaboðum hans. Sektarkenndin gæti sagt: „Ég stóð ekki við það sem ég lofaði. Ég þarf að viðurkenna það, biðjast afsökunar og vanda mig betur við samkomulag.“ Skömmin gæti sagt: „Ég er ömurlegur vinur. Það er enginn tilgangur í að reyna.“

Í báðum tilvikum hefur sami atburður átt sér stað. Munurinn liggur í því hvort þú sérð eitthvað sem þú getur tekið ábyrgð á eða afskrifar þig sem manneskju.

Sektarkennd getur vísað á það sem þarf að laga

Það er eðlilegt að finna til sektarkenndar þegar við höfum gengið gegn eigin gildum eða skaðað aðra. Hún getur hvatt okkur til að viðurkenna það sem gerðist, biðjast afsökunar, bæta fyrir þar sem það er hægt og breyta hegðun okkar.

Tilfinningin ein segir þó ekki alltaf rétt til um ábyrgðina. Við getum líka fundið til sektarkenndar vegna þess sem við réðum ekki við eða þegar við setjum sanngjörn mörk. Þess vegna þurfum við að spyrja: Hvað gerðist? Hvað var á mínu valdi? Hvað ber ég raunverulega ábyrgð á?

Markmiðið er að sektarkenndin hjálpi okkur að sjá og bregðast við. Endalaus sjálfsásökun bætir ekki sjálfkrafa fyrir það sem við sjáum eftir.

Skömm vegna þess sem hefur verið gert okkur

Manneskja sem hefur orðið fyrir ofbeldi, niðurlægingu eða höfnun getur farið að upplifa að eitthvað sé að henni sjálfri. Hún getur hugsað: „Ég hefði átt að koma í veg fyrir þetta“ eða „þetta hlýtur að segja eitthvað um mig“.

Þær hugsanir gera hana ekki ábyrga fyrir því sem annar einstaklingur gerði henni. Ábyrgðin á ofbeldinu liggur hjá þeim sem beitti því.

Þetta er mikilvæg aðgreining. Stundum þurfum við að taka ábyrgð á eigin gjörðum. Í öðrum tilvikum þurfum við stuðning við að skila ábyrgð sem við höfum borið án þess að hún hafi nokkurn tíma verið okkar.

Þegar fortíðin verður að allri sjálfsmyndinni

Ef við förum að skilgreina okkur eingöngu út frá því versta sem við höfum gert getur orðið erfitt að sjá tilgang í breytingum. Hugsunin „ég brást trausti“ verður að „mér verður aldrei treyst“. „Ég hef skaðað“ verður að „ég get ekki gert neitt gott“.

Þá þurfum við að geta haldið tveimur hlutum í huga samtímis: Það sem ég gerði getur hafa verið alvarlegt og kallað á ábyrgð. Ég er samt manneskja sem getur lært, breytt hegðun sinni og byggt upp annað líf.

Hjá Það er von viljum við styðja slíka uppbyggingu. Við viljum að fólk geti horfst í augu við gjörðir sínar án þess að þurfa að rífa niður eigið manngildi.

Að gefa sjálfsmyndinni nýja reynslu

Sjálfsmyndin byggist ekki aðeins upp með því að segja sér eitthvað annað. Við þurfum líka að fá reynslu af okkur sjálfum í nýjum aðstæðum.

Það getur falist í að standa við lítið samkomulag, vera hreinskilin þegar eitthvað fer úrskeiðis, virða mörk eða biðja um aðstoð áður en vandinn stækkar. Þessar athafnir þurfa ekki að vera stórar. Með endurtekningu geta þær gefið hugsuninni „ég get breyst“ stoð í eigin reynslu.

Þú þarft ekki að vera fullkominn til að byggja upp traust á sjálfum þér. Það skiptir líka máli hvernig þú bregst við þegar þér verður á: hvort þú viðurkennir það, leitar lausna og reynir aftur.

Skömm og stimplun í samfélaginu

Skömm er ekki aðeins eitthvað sem gerist innra með okkur. Hún getur líka tengst því hvernig aðrir tala um okkur og koma fram við okkur.

Stimplun verður meðal annars þegar manneskja er smættuð í vandann sinn eða fortíðina og er fyrir fram talin minna traustsins eða stuðningsins verð. Skilaboð utan frá geta síðan orðið að eigin rödd: „Svona fólk fær ekki annað tækifæri — og ég er svona fólk.“

Rannsóknir á fíknitengdri stimplun benda til tengsla við meiri vanlíðan og hindranir við að leita aðstoðar. Það er því ástæða til að vanda bæði orðalag og framkomu.

Við getum fordæmt skaðlega hegðun, sett mörk og tekið afleiðingar hennar alvarlega, án þess að niðurlægja manneskjuna eða útiloka möguleikann á breytingum.

Þú mátt velja hverjum þú segir frá

Að vinna með skömm krefst ekki þess að segja öllum frá einkalífi sínu. Hreinskilni og rétturinn til einkalífs geta farið saman.

Það getur verið mikilvægt skref að tala við traustan viðmælanda sem hlustar af virðingu og þekkir takmörk sín. Þú mátt velja hvað þú segir, við hvern og hvenær. Það getur verið nóg að byrja á því hvernig þér líður, án þess að lýsa öllum atburðum.

Að leita stuðnings er ekki það sama og að birta sögu sína opinberlega.

Að fyrirgefa sjálfum sér

Sjálfsfyrirgefning felur ekki í sér að segja að ekkert hafi gerst eða að afleiðingarnar skipti ekki máli. Hún getur falist í að viðurkenna eigin ábyrgð og hætta smám saman að nota hana sem ástæðu til að afskrifa sig.

Fyrir suma byrjar þessi vinna á ákvörðun um að vilja breyta sambandi sínu við fortíðina. Tilfinningaleg sátt getur hins vegar tekið lengri tíma. Hún getur byggst á iðrun, úrvinnslu, því að bæta fyrir og því að sýna sér í verki að hægt sé að lifa samkvæmt öðrum gildum.

Þú getur einnig syrgt það sem þú hefur misst eða farið illa með í eigin lífi. Sú sorg má fá pláss, án þess að hún þurfi að verða að lífstíðardómi yfir þér.

Þú getur tekið ábyrgð á þinni vinnu. Þú getur ekki ákveðið hvenær eða hvort annar einstaklingur fyrirgefur þér. Að bæta fyrir þarf að virða mörk þess sem varð fyrir skaðanum; samband eða afsökunarbeiðni á ekki að verða þrýstingur um að veita þér létti.

Þegar aðrir hafa skaðað þig

Fyrirgefning getur einnig komið til skoðunar vegna þess sem aðrir hafa gert þér. Fyrir suma verður hún hluti af því að vinna úr reynslunni og draga úr tökum hennar á lífinu.

Hún þýðir ekki að verknaðurinn hafi verið réttlætanlegur, að gleyma eigi honum eða að endurvekja þurfi samband. Þú mátt halda mörkum og verja öryggi þitt.

Það á ekki að þrýsta á þig að fyrirgefa eða gera fyrirgefningu að skilyrði fyrir bata. Þú mátt vinna að eigin líðan, frelsi og framtíð á þínum hraða.

Ábyrgð sem birtist í dag

Fortíðinni verður ekki breytt. Það er hins vegar hægt að vinna með áhrif hennar og velja hvernig við bregðumst við núna.

Spurningin getur smám saman færst frá „Hvernig get ég refsað mér fyrir þetta?“ yfir í: „Hvaða ábyrgð get ég tekið í dag og hvernig vil ég lifa héðan í frá?“

Heimildir og nánara efni
Fara í æfinguna

Frá sjálfsásökun til ábyrgðar

Veldu afmarkað viðfangsefni sem þú treystir þér til að skoða. Ekki þarf að velja sársaukafyllstu reynsluna eða skrá nöfn, brot eða áfallafrásögn. Þú mátt sleppa spurningum og gera hlé.

Er hugsunin um tiltekinn atburð eða orðin að dómi um alla manneskjuna?

Hvað finnst mér eiga við?

Til dæmis: „Ég gerði eitthvað sem ég sé eftir og þarf að skoða næstu skref.“ Eða: „Það sem ég varð fyrir gerir mig ekki minna virði.“

Þú þarft ekki að skrá það sem þú óttast að komist upp; skoðaðu aðeins áhrif óttans.

Að bæta fyrir þarf að taka tillit til öryggis og vilja þess sem varð fyrir skaða. Stundum er rétt að fá leiðsögn áður en haft er samband.

Hvaða gildi vil ég sýna í verki?

Mín ábyrgð og uppbyggileg næstu skref

Þegar þú skrifar svör birtast valin atriði hér. Engin stig eða mat eru reiknuð.

Skoða mína samantekt

Kafli 11 af 15

Tengsl, einmanaleiki og mörk

Að eiga stað meðal annarra á eigin forsendum, í aðstæðum sem styðja bata og öryggi.

Í þessum kafla · 7 hlutar

Að eiga stað meðal annarra á eigin forsendum

Breytingar á neyslu eða annarri skaðlegri hegðun geta líka breytt félagslífinu. Venjur raskast, sumar samverustundir verða flóknari og það getur þurft að finna nýjar leiðir til að vera með öðru fólki.

Félagsleg þátttaka getur átt sér stað í íþróttum, námi, vinnu, áhugamálum eða stuðningsstarfi. Tengsl við fjölskyldu geta einnig verið mikilvægur stuðningur þegar þau eru örugg og uppbyggileg.

Það er engin ein félagsleg dagskrá sem allir þurfa að fylgja. Spurningin er hvers konar tengsl þú þarft og hvernig þau geta fengið pláss í þínu lífi.

Hversu mikinn félagsskap þarf ég?

Sumir eiga auðvelt með að mynda tengsl og hafa stórt tengslanet. Aðrir eiga færri sambönd, þurfa lengri tíma til að kynnast fólki eða kjósa meiri tíma einir.

Að vera einn er ekki það sama og að vera einmana. Þú getur notið einveru og átt góð tengsl. Þú getur líka verið innan um margt fólk og samt upplifað að enginn þekki þig eða skilji.

Þess vegna er gagnlegra að skoða eigin líðan en að bera fjölda vina eða samverustunda saman við aðra: Fæ ég þann félagsskap sem ég vil og þarf? Hef ég einhvern sem ég get talað hreinskilnislega við? Finn ég að ég tilheyri einhvers staðar? Er ég að velja einveru eða draga mig í hlé þótt mig langi í tengsl?

Þessar spurningar má skoða með ráðgjafa eða öðrum traustum stuðningsaðila. Þú þarft ekki að hafa svörin strax.

Sameiginlegur áhugi getur opnað tengsl

Það getur verið auðveldara að kynnast fólki þegar eitthvað sameiginlegt tengir okkur saman. Það geta verið sameiginleg markmið í bata, áhugi á íþróttum, tónlist, námi eða öðru viðfangsefni.

Fyrir suma verða tólf spora samtök eða aðrir stuðningshópar mikilvægur vettvangur. Þar getur sameiginleg reynsla auðveldað samtal og tengslamyndun. Aðrir finna tengsl á öðrum stöðum eða nýta fleiri leiðir samhliða.

Þú þarft ekki að finna nýjan vinahóp í einu skrefi. Upphafið getur verið að mæta reglulega á sama stað, heilsa einhverjum eða taka þátt í afmarkaðri athöfn.

Áhugamálið og aðstæðurnar eru ekki það sama

Það er mikilvægt að skoða hvernig samveran fer fram, ekki aðeins hvað fólk hefur áhuga á.

Segjum að þú hafir gaman af fótbolta og hafir vanist því að horfa á leiki með vinum á bar. Ráðið „tengstu fólki sem heldur með sama liðinu“ gæti þá leitt þig beint inn í aðstæður sem tengjast fyrri neyslu og reynast þér erfiðar.

Áhuginn á fótboltanum þarf ekki að hverfa. Það getur hins vegar þurft að finna annan ramma utan um hann: horfa saman heima án áfengis, mæta á leik eða velja aðra samveru sem þú treystir þér í.

Spurningin er: „Hvernig get ég stundað þetta þannig að það styðji það sem ég er að byggja upp?“

Þegar boðin hætta að berast

Sumir þurfa ekki að byggja tengslanet frá grunni. Þeir eiga vini og vilja halda þeim tengslum. Samt getur komið upp sú sára reynsla að vinirnir haldi áfram að hittast en hætti að bjóða þeim með.

Þá getur vaknað hugsunin: „Er ég ekki lengur hluti af hópnum af því að ég hætti að drekka?“

Stundum liggur óvissa að baki. Vinir vita kannski ekki hvort þeir eigi að bjóða, vilja forðast að setja þrýsting á viðkomandi eða halda að boðið sjálft sé óþægilegt. Það útilokar ekki særindin, en getur gefið tilefni til að skýra væntingar áður en ályktað er um ásetning annarra.

Ef og þegar þú treystir þér til gæti samtalið hljómað svona: „Ég er ánægður með ákvörðunina mína að hætta að drekka og mig langar áfram að vera í sambandi við ykkur. Mér þætti vænt um að fá boð. Ég vil svo sjálfur meta hvort aðstæðurnar henti mér og hvort ég treysti mér til að koma. Mig langar líka að við gerum stundum eitthvað saman án áfengis.“

Að vilja fá boð þýðir ekki að þurfa að mæta. Þú mátt hafna, fara fyrr eða velja aðrar aðstæður.

Mörk þurfa stundum að byggjast upp með stuðningi

Það er ekki alltaf einfalt að segja hvað maður vill og vill ekki. Ótti við höfnun, lítið sjálfstraust eða fyrri reynsla getur gert slíkt samtal erfitt.

Þú þarft ekki að lesa þessa grein og fara strax að eiga krefjandi samtal. Fyrsta skrefið getur verið að ræða við stuðningsaðila, finna orð yfir eigin þarfir eða æfa samtalið í öruggu umhverfi.

Þú getur líka byrjað á einum vini sem þú treystir fremur en að tala við allan hópinn.

Taktu eftir hvernig þörfum þínum er mætt. Er hlustað á þig? Eru mörkin virt? Er hægt að finna samveru sem hentar báðum? Ef endurtekinn þrýstingur, niðurlæging eða óöryggi fylgir samskiptunum getur þurft að endurmeta umfang þeirra með stuðningi.

Tengsl í bata fá að þroskast

Að verða öruggari í samskiptum getur tekið tíma. Þú ert að læra inn á eigin þarfir, aðstæður og mörk, og fólkið í kringum þig getur líka þurft að læra hvað breytingin felur í sér.

Markmiðið er að eiga tengsl þar sem þú getur verið þátttakandi án þess að ganga gegn eigin bata eða öryggi. Sum tengsl styrkjast, önnur breytast og ný geta bæst við.

Þú mátt gefa þessari vinnu tíma og fá aðstoð á meðan.

Heimildir og nánara efni
Fara í æfinguna

Tengslin mín og næsta litla skref

Ekki þarf að skrá nöfn eða taka stórar ákvarðanir. Þú getur notað hlutverk, svo sem „vinur“, „fjölskyldumeðlimur“ eða „félagi úr hópi“.

Hvernig er staðan mín núna? Fleiri en eitt svar má eiga við.

Þú mátt velja að undirbúa þig betur áður en þú tekur samtalið.

Skrefið gæti verið að senda einum vini skilaboð, kanna hóp, mæta einu sinni í áhugamál eða ræða við stuðningsaðila.

Tengsl og þátttaka á mínum forsendum

Þegar þú skrifar svör birtast valin atriði hér. Engin stig eða mat eru reiknuð.

Skoða mína samantekt

Kafli 12 af 15

Traust og að bæta fyrir

Að taka ábyrgð án þess að ráða niðurstöðunni. Orð og hegðun sem fara saman yfir tíma.

Í þessum kafla · 9 hlutar

Að taka ábyrgð án þess að ráða niðurstöðunni

Reynsla fólks af fíkn er ólík. Sumir hafa logið, stolið, brugðist samkomulagi, sært aðra eða beitt ofbeldi. Aðrir kannast ekki við slíka sögu. Það á ekki að gera ráð fyrir að allir sem glíma við fíkn hafi sömu hluti að bæta fyrir.

Þessi kafli er fyrir þig sem vilt skoða skaða sem þú hefur valdið og hvernig þú getur tekið ábyrgð á honum.

Hvers vegna vil ég bæta fyrir?

Þegar við sjáum eftir eigin gjörðum er skiljanlegt að vilja fá fyrirgefningu og finna að sambandið geti orðið gott aftur. Afsökunarbeiðni getur þó ekki verið samningur þar sem við tökum ábyrgð gegn því að hinn aðilinn veiti okkur ákveðin viðbrögð.

Við getum viðurkennt það sem við gerðum, hlustað á áhrif þess og boðist til að bæta fyrir þar sem það er hægt. Við getum ekki ákveðið hvort hinn aðilinn verði tilbúinn til að hlusta, fyrirgefa eða halda sambandinu áfram.

Ábyrgðin þarf því að byggjast á því hvernig við viljum sjálf haga okkur, jafnvel þegar við fáum ekki þá niðurstöðu sem við óskum okkur.

Að nefna gjörðirnar og áhrif þeirra

Að taka ábyrgð felur meðal annars í sér að geta sagt skýrt hvað við gerðum, án þess að gera lítið úr því eða færa ábyrgðina yfir á aðra.

Neysla, vanlíðan og aðstæður geta verið hluti af skýringunni. Þær eyða ekki sjálfkrafa áhrifunum á þann sem varð fyrir skaðanum.

Afsökunarbeiðni gæti til dæmis hljómað svona: „Ég laug að þér og brást traustinu sem þú sýndir mér. Ég sé að það hafði áhrif á þig og ég tek ábyrgð á því. Mig langar að bæta fyrir það sem ég get og sýna breytingar í verki. Þú þarft ekki að svara mér núna.“

Orðin þurfa að vera sönn fyrir viðkomandi aðstæður. Tilgangurinn er að viðurkenna gjörðirnar og áhrif þeirra, fremur en að finna réttu setninguna sem tryggir fyrirgefningu.

Að bæta fyrir getur verið verk, ekki aðeins orð

Stundum er hægt að bæta fyrir með afmarkaðri aðgerð: skila því sem var tekið, standa við skuldbindingu, leiðrétta ósannindi eða breyta hegðun sem hefur valdið skaða.

Stundum er skaðinn ekki afturkræfur. Þá getur ábyrgðin falist í að viðurkenna það, virða mörk og vinna markvisst að því að hegðunin endurtaki sig ekki.

Loforð um breytingu þarf að vera raunhæft. Það er betra að taka skýrt skref sem þú stendur við en að lofa öllu í þeirri von að fá strax traustið aftur.

Viðbrögðin eru ekki á okkar valdi

Hinn aðilinn getur tekið vel á móti afsökunarbeiðninni. Hann getur líka verið sár, reiður, tortrygginn eða ekki viljað eiga samtalið.

Sumir fyrirgefa með tímanum. Aðrir gera það ekki. Það getur verið mjög sársaukafullt að sætta sig við, sérstaklega þegar maður er sjálfur að leggja mikið á sig til að breytast.

Þú getur ekki krafist þess að annar einstaklingur leggi sársauka sinn til hliðar vegna þess að þú sért tilbúinn að gera upp málið. Þú getur hins vegar haldið áfram að taka ábyrgð á eigin lífi, þótt viðbrögðin verði önnur en þú vonaðist eftir.

Að sleppa tökunum á niðurstöðunni þýðir ekki að skaðinn hafi hætt að skipta máli. Það felur í sér að viðurkenna mörk eigin áhrifa.

Fyrirgefning og traust eru ekki það sama

Manneskja getur fyrirgefið þér án þess að vilja endurvekja sambandið. Hún getur líka viljað halda einhverjum tengslum en ekki treyst þér fyrir sömu hlutum og áður.

Traust þarf oft tíma og endurtekna reynslu. Það getur byggst upp þegar orð og hegðun fara saman: þú stendur við samkomulag, segir satt, virðir mörk og tekur ábyrgð þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Það er ekki hægt að ákveða fyrir annan hversu langan tíma það á að taka eða hvort traustið verði aftur eins og það var.

Virðum mörk þess sem varð fyrir skaðanum

Löngun okkar til að bæta fyrir gefur okkur ekki sjálfkrafa rétt á samtali eða aðgangi að annarri manneskju.

Ef viðkomandi hefur óskað eftir engum samskiptum þarf að virða það. Sérstaklega þegar ofbeldi eða annar alvarlegur skaði hefur átt sér stað getur verið mikilvægt að fá faglega leiðsögn áður en haft er samband.

Við getum unnið með eigin ábyrgð án þess að krefja þann sem varð fyrir skaðanum um að taka þátt í þeirri vinnu.

Ábyrgð á eigin lífi í dag

Ábyrgð snýst líka um það sem gerist eftir afsökunarbeiðnina: hvernig við tölum, högum okkur, leitum aðstoðar og vinnum með eigin viðbrögð.

Við stjórnum ekki öllum hugsunum sem birtast eða tilfinningum sem vakna. Við getum þó lært að taka eftir þeim og fengið stuðning við að velja hvernig við bregðumst við. Að vera sár eða reiður réttlætir ekki að særa aðra.

Að axla ábyrgð getur styrkt sjálfsvirðingu. Við fáum reynslu af því að geta horfst í augu við gjörðir okkar og hagað okkur í samræmi við þau gildi sem við viljum lifa eftir.

Þetta getur verið erfitt ferli

Stundum verður úr gott samtal og báðir aðilar finna létti. Stundum fylgja ferlinu sorg, höfnun og óvissa.

Þú mátt þurfa stuðning við þá líðan. Að taka ábyrgð þýðir ekki að þú þurfir að þola hótanir eða niðurlægingu. Þú getur virt sársauka og mörk annarra og jafnframt sett mörk fyrir því hvernig komið er fram við þig.

Þú þarft ekki að fá alla til að fyrirgefa þér til að halda áfram að byggja upp líf þitt. Verkefnið þitt er að taka raunverulega ábyrgð, bæta fyrir þar sem það er viðeigandi og mögulegt og sýna breytingarnar í verki.

Heimildir og nánara efni
  • Rannsóknir á sjálfsfyrirgefningu og ábyrgð

    Woodyatt, Wenzel og Ferber (2017), rannsakendur í sálfræði: sjálfsfyrirgefning, gildi og að bæta fyrir.

  • Um kaflann

    Hagnýt fræðsla á vegum Það er von. Æfingin metur ekki hvort einhver hafi bætt nóg fyrir eða hvort annar einstaklingur eigi að fyrirgefa.

Fara í æfinguna

Mín ábyrgð og mörk hennar

Veldu afmarkað viðfangsefni sem þú treystir þér til að skoða. Ekki þarf að skrá nöfn eða lýsa skaðlegum atburðum í smáatriðum. Æfingin er til ígrundunar, ekki hvatning til að hafa strax samband við einhvern.

Reyndu að lýsa gjörðinni án afsakana eða dóms um allt þitt manngildi.

Hvað gæti verið raunhæft og viðeigandi?

Mín ábyrgð og næstu skref

Þegar þú skrifar svör birtast valin atriði hér. Engin stig eða mat eru reiknuð.

Skoða mína samantekt

Kafli 13 af 15

Bakslag og aðdragandinn

Fyrri vinna hverfur ekki. Viðbrögð, stuðningur og lærdómur skipta máli núna.

Í þessum kafla · 7 hlutar

Öryggi og stuðningur fyrst

Bakslag er þegar neysla eða skaðlegt hegðunarmynstur tekur sig upp aftur eftir tímabil breytinga eða bata. Orðin fall og bakslag eru notuð með mismunandi hætti. Hér skoðum við hvað gerðist, hvaða aðstoð þarf og hvað má læra af aðdragandanum.

Bakslag getur haft alvarlegar afleiðingar. Eftir neysluhlé getur þol minnkað og fyrri skammtur valdið ofskömmtun, sérstaklega þegar um ópíóíða er að ræða. Við bráða hættu skaltu hringja í 112. Leitaðu viðeigandi aðstoðar áður en þú ferð í ítarlega úrvinnslu.

Þú býrð að edrútímanum

Bakslag þýðir ekki að fyrri edrútími hafi verið til einskis. Reynslan, þekkingin og vinnan sem þú hefur lagt í bata þinn eru áfram til staðar. Markmiðið er að koma í veg fyrir bakslag, en ef það verður þarf að skoða hvað gerðist og hvað þarf að breytast.

Að sleppa hugmynd sem gengur ekki upp

Fyrir þann sem hefur ítrekað reynt að stjórna neyslu án þess að það gangi getur mikilvæg viðurkenning verið: „Ég get ekki haldið áfram þessari neyslu og lifað um leið því lífi sem ég vil lifa.“ Þessi uppgjöf felur ekki í sér að gefast upp á sjálfum sér. Við atferlisvanda þarf að skilgreina markmiðin eftir eðli vandans; til dæmis er aldrei markmiðið að hætta að nærast.

Þegar hugsunin breytist

Í aðdraganda bakslags getur það sem áður var skýr áhætta farið að virðast ásættanlegt: „Bara í þetta skipti“ eða „ég ræð við þetta núna“. Slíkar hugsanir má ræða áður en þær verða að athöfn. Þær eru þó ekki eina mögulega skýring bakslags.

Hvar byrjaði fallbrautin?

Þegar við skoðum bakslag spyrjum við ekki aðeins: „Hvenær notaðirðu?“ Við spyrjum líka: „Hvenær byrjaði aðdragandinn? Hvað breyttist áður en þú notaðir? Hvar hefði verið hægt að grípa inn í?“ Það er þessi aðdragandi sem við köllum hér fallbraut.

Kannski hættirðu smám saman að gera það sem hjálpaði þér fyrst. Fundirnir detta út, svefninn raskast eða þú dregur þig frá fólkinu sem þú gast talað við. Kannski ferð þú inn í aðstæður án þess að hugsa fyrir því hvaða áskoranir gætu beðið þar. Það þarf ekki að vera einn atburður sem skýrir allt. Við erum að leita að mynstrinu sem þú getur lært af og brugðist fyrr við næst.

Undirbúningur fyrir erfiðar aðstæður

Segjum að þú missir einhvern nákominn. Þú ert ekki í góðu jafnvægi, stuðningsnetið er lítið og þú hefur enga áætlun um hvað þú gerir þegar tilfinningarnar verða yfirþyrmandi. Þá getur gamla leiðin til að deyfa líðanina aftur orðið freistandi.

Við fáum ekki breytt missinum. Við getum hins vegar undirbúið stuðninginn: Hvern hringi ég í? Hvar get ég fengið samtal? Hvernig fæ ég meiri aðstoð þegar venjulegu bjargráðin duga ekki? Þessi vinna á líka að eiga sér stað áður en eitthvað gerist. Við þurfum ekki að bíða eftir bakslagi til að skoða hvar okkur vantar stuðning.

Lærdómur verður að aðgerð

Farðu í gegnum aðdragandann með traustum viðmælanda. Hvað var að hjálpa sem ég var hættur að gera? Hvenær fór ég að einangra mig eða réttlæta áhættuna? Hvaða aðstæður vanmat ég? Hverju gat ég haft áhrif á og hvar hefði ég þurft meiri stuðning? Veldu síðan eina breytingu sem þú ætlar að framkvæma og ákveðið hvenær þið farið yfir hana aftur.

Skilningur á aðdragandanum og ábyrgð á næstu skrefum geta farið saman. Það getur þurft að endurvekja stuðningsnet, breyta meðferð eða fá meiri aðstoð. Sömu spurningar nýtast til forvarna áður en bakslag verður. Bakslag er ekki nauðsynlegt skref í bata.

Fara í æfinguna

Skoðum aðdragandann

Notaðu æfinguna eftir bakslag þegar þú ert í aðstæðum til þess, eða til forvarna þegar þú tekur eftir breytingum. Ekki þarf að rifja upp viðkvæma atburði í smáatriðum.

Mín tímalína

Allt að sex punktar. Þú mátt lýsa breytingum á líðan eða stuðningi án þess að skrá viðkvæma atburði.

Skoða mína samantekt

Kafli 14 af 15

Fólkið í stuðningsnetinu

Sameiginleg reynsla, sérhæfð ráðgjöf og fagleg meðferð geta sinnt ólíkum þörfum.

Í þessum kafla · 7 hlutar

Jafningjastuðningur: einhver sem skilur

Það getur skipt miklu að tala við manneskju sem hefur sambærilega reynslu af fíkn og bata. Sameiginleg reynsla getur auðveldað tengingu, hreinskilni og speglun. Stuðningurinn getur komið frá vini í bata, félaga úr hópi, trúnaðarmanni í tólf spora samtökum eða þjálfuðum jafningjastuðningsaðila.

Reynsla er ekki uppskrift

Það sem hjálpaði öðrum þarf ekki að henta þér. Persónuleg reynsla ein veitir ekki hæfni til greiningar eða sérhæfðrar meðferðar. Jafningi getur líka verið menntaður fagaðili, en hlutverkið í samtalinu þarf að vera skýrt. Þú mátt vera ósammála og leita annarrar aðstoðar.

Fíkniráðgjöf

Fíkniráðgjöf beinist að fíknivanda og áhrifum hans, hvort sem vandinn tengist efnum eða hegðun. Þar getur verið unnið með stjórnmissi, endurtekin mynstur, breytingavilja, löngun, bakslagsforvarnir og daglegar venjur. Ráðgjafi getur nýtt eigin reynslu af yfirvegun, en samtalið á að þjóna þínum þörfum. Menntun og sérþekking eru mismunandi; ekki hafa allir þekkingu á öllum birtingarmyndum vandans.

Sálfræðimeðferð

Sálfræðingar geta meðal annars aðstoðað við kvíða, þunglyndi, áfallatengd einkenni og hegðunar- og tilfinningamynstur sem valda vanda. Sumir hafa sérhæfingu í fíkn eða átröskunum. Meðferðin byggist á faglegu mati og samstarfi um markmið og getur falið í sér samtöl, æfingar og vinnu milli tíma.

Áfallameðferð og EMDR

Ef áfallatengd einkenni eru til staðar getur sérhæfð áfallameðferð komið til greina. EMDR er ein slík aðferð. Áfallasaga ein segir ekki hvaða meðferð hentar. Meta þarf einkennin, aðstæðurnar, óskir þínar og hæfni meðferðaraðilans.

Hlutverk, hæfni og mörk

Spyrðu um menntun, þjálfun, reynslu og aðferðir. Góður stuðningur virðir sjálfstæði þitt, skýrir trúnað og takmarkanir hans og opnar á aðra aðstoð þegar þörf er á. Þrýstingur til að leyna samskiptum, einangra sig frá öðrum stuðningi eða hætta ávísuðum lyfjum án samráðs við lækni er ástæða til að leita óháðs faglegs álits.

Fleiri en ein leið

Vinur í bata, fíkniráðgjöf, sálfræðimeðferð og læknisfræðileg aðstoð geta farið saman. Spurningin er hvaða stuðning þú þarft núna og hver hafi hæfni til að veita hann.

Fara í æfinguna

Hvað vantar í stuðningsnetið mitt?

Skráðu hlutverk eða upphafsstafi frekar en viðkvæmar upplýsingar um annað fólk. Æfingin velur ekki meðferð fyrir þig.

Skoða mína samantekt

Kafli 15 af 15

Hvaða leið vil ég kanna?

Aðgreinum þarfir, óskir og faglegt mat. Engin ein leið hentar öllum.

Þín rödd skiptir máli

Byrjaðu á þremur spurningum. Hvað þarf ég hjálp við núna? Hvað hefur hjálpað mér áður? Hvað hefur gert mér erfiðara að nýta stuðning? Skrifaðu svo hjá þér hverju þú vilt spyrja ráðgjafa eða meðferðaraðila að. Það getur verið um hópastarf, einstaklingsviðtöl, trú eða andlega nálgun, veraldlegt orðalag, áfallavinnu eða hvernig aðstoðin fellur að daglegu lífi.

Það er eðlilegt að vilja skilja nálgunina sem stendur þér til boða. Sumir sækja styrk í andlega nálgun eða trú, aðrir vilja veraldlegt orðalag og úrræði. Hópur getur hentað einum og einstaklingssamtöl öðrum. Þú mátt spyrja og kanna fleiri leiðir.

Óskir og þarfir eru ekki það sama

Að kjósa tiltekið stuðningsform segir ekki eitt og sér til um meðferðarþörf. Einkenni, heilsufar og aðstæður þurfa faglegt mat þegar við á. Vandi vegna fíknar og annar geðrænn vandi geta farið saman og stundum þarf samþætta aðstoð.

Menning í stuðningi og meðferð

Stuðningshópar og meðferðarúrræði geta notað ólík hugtök, vinnulag og hefðir. Spyrðu hvað felist í þeim og hvort aðlögun sé möguleg. Þín reynsla af einu úrræði segir ekki til um allar aðrar leiðir. Virðing, skýr hlutverk og raunhæft samstarf skipta máli.

Þetta er undirbúningur fyrir samtal

Spurningarnar hér gefa samantekt á því sem þú vilt kanna. Þær greina ekki áfallastreituröskun, fíkn eða önnur veikindi og reikna ekki út hvaða meðferð þú átt að fá. Þú þarft ekki að velja milli fíkniaðstoðar og aðstoðar við andlega líðan.

Fara í æfinguna

Undirbúningur fyrir næsta samtal

Veldu það sem lýsir þér núna. Þú mátt sleppa spurningum og breyta svörum síðar.

Hvað vil ég helst fá aðstoð við?
Hvaða stuðningsform vil ég kynna mér?
Hvaða nálgun vil ég ræða eða kanna?
Skoða mína samantekt

MÍN ORÐ · MÍN NÆSTU SKREF

Mín samantekt

Þetta eru þín eigin svör, ekki niðurstaða um greiningu eða meðferðarþörf. Þú getur tekið þau með í samtal við stuðningsaðila.

Samantektin getur innihaldið viðkvæmar upplýsingar. Veldu sjálfur hvar þú geymir hana og hverjum þú sýnir hana.

Þarftu að ræða næsta skref?

Þú mátt leita stuðnings þótt þú hafir ekki ákveðið allt. Ekki senda svörin eða viðkvæmar upplýsingar í fyrstu fyrirspurn.

Hafa samband við Það er von
Um efnið, heimildir og takmarkanir

Fræðsluefnið er unnið fyrir Það er von og var uppfært 2. nóvember 2026. Það lýsir nálgun til fræðslu og ígrundunar. Spurningarnar eru ekki staðlaðir greiningarlistar og engin stig eða meðferðarflokkun eru reiknuð.

Almennar heimildir um vímuefni eiga ekki sjálfkrafa við um allan atferlisvanda. Sérþekking og mat þarf að taka mið af viðfangsefninu. Kerfið tekur ekki við fyrirspurnum eða fylgist með líðan þinni.

Hreinsa mín gögn?

Öllum svörum, tímalínu og framvindu á þessu svæði verður eytt úr minni síðunnar og vistun þessa vafra. Sóttum skrám verður ekki eytt. Gögn á öðrum svæðum vefsins haldast óbreytt.

Lesa fræðslukaflana

Veldu sjálfstæða lesútgáfu til að lesa, deila eða vísa í. Úr hverjum kafla geturðu farið beint í gagnvirku æfingarnar.

Sjá alla 15 kaflana
  1. Að skilja fíkn og bata
  2. Ólíkar birtingarmyndir fíknivanda
  3. Hvað gefur þetta mér og hvað kostar það?
  4. Gildi, sjálfsmynd og framtíð
  5. Daglegt líf, ánægja og tilgangur
  6. Þegar ekkert virðist skemmtilegt
  7. Að gefa tilfinningum pláss
  8. Þegar löngunin kemur
  9. Hugsanir sem réttlæta neyslu
  10. Skömm, sektarkennd og sjálfsmynd
  11. Tengsl, einmanaleiki og mörk
  12. Traust og að bæta fyrir
  13. Bakslag og aðdragandinn
  14. Fólkið í stuðningsnetinu
  15. Hvaða leið vil ég kanna?

Orðskýringar um fíkn, bata og tengsl · Finna aðstoð