ÞJÓNUSTAN OKKAR Í DAG
Endurgjaldslaus fíkniráðgjöf
Það er von býður endurgjaldslausa fíkniráðgjöf í fjarviðtölum fyrir fólk með fíknivanda og aðstandendur þess, ásamt stuðningsfundum fyrir aðstandendur. Þjónustan er fjármögnuð með framlögum til samtakanna.
Fíkniráðgjöf á vegum Það er von
Hægt er að bóka fjarviðtal hjá fíkniráðgjafa á vegum félagsins. Ráðgjöfin er fyrir fólk sem glímir við fíknivanda og aðstandendur þess.
Ráðgjöfin er einstaklingsmiðuð og byggist á samtali, faglegri þekkingu og reynslu. Viðtalið tekur mið af aðstæðum þínum, líðan, tengslum og þeim breytingum sem þú vilt vinna að.
Við sinnum ráðgjöf vegna áfengis- og vímuefnavanda og atferlisfíknar. Aðstandendur geta óskað eftir viðtali vegna eigin líðanar, samskipta og marka. Viðtölin fara fram á netinu og eru í boði óháð búsetu. Kynntu þér fólkið og reynsluna að baki starfinu.
Hvar get ég leitað hjálpar vegna áfengis- eða vímuefnavanda?
Get ég leitað til fíkniráðgjafa sem aðstandandi?
Já. Þú getur óskað eftir fjarviðtali fyrir þig, hvort sem nákominn einstaklingur leitar sjálfur aðstoðar eða ekki. Í viðtalinu má ræða hvað neyslan hefur áhrif á í þínu lífi og hvernig þú getur brugðist við. Þú getur líka kynnt þér fræðslu fyrir aðstandendur og stuðningsfundina.
Hvernig fer fyrsta viðtal fram?
Fyrsta viðtalið tekur mið af því sem þú vilt fá út úr samtalinu. Þú þarft ekki að vera með allt á hreinu eða vita fyrirfram hvernig framhaldið á að vera. Við byrjum á því sem skiptir þig mestu máli.
Stundum er erindið afmarkað: eitthvað liggur þungt á þér, þú stendur frammi fyrir ákvörðun eða þarft að undirbúa erfitt samtal. Þá getur eitt viðtal nýst til að ræða stöðuna, skoða möguleika og finna næstu skref. Ef erindið þolir illa bið máttu taka það fram þegar þú hefur samband. Við skoðum hvaða tímar eru lausir; ekki er hægt að tryggja viðtal strax.
Eitt samtal eða reglulegur stuðningur
Sum leita eftir stuðningi til lengri tíma. Þá má byrja rólega, kynnast og byggja upp ráðgjafarsamband. Þú getur komið vegna ákveðinna tímamóta eða óskað eftir reglulegum viðtölum til að ræða líðan, áskoranir og framfarir. Framhaldið er ákveðið í samráði við þig og tekur mið af þörfum þínum og þeim tímum sem eru í boði.
Hvað getum við unnið með?
Fyrir fólk með fíknivanda getur ráðgjöfin snúist um vímuefnanotkun eða áráttukennda hegðun, breytingavilja, löngun, bjargráð og daglegt líf í bata. Áhersla er lögð á að greina hvað þú getur haft áhrif á og vinna með eigin viðhorf, viðbrögð, venjur og stefnu í lífinu.
Fyrir aðstandendur getur ráðgjöfin meðal annars snúist um áhyggjur, eigin líðan, samskipti, mörk og meðvirk mynstur þegar þau eru til staðar. Skoðað er hvernig þú getur stutt aðra og um leið hugað að eigin þörfum.
Samtal við reynslumikið fósturforeldri
Hægt er að kanna möguleika á samtali við fósturforeldri með reynslu af umönnun og stuðningi við börn. Samtalið getur veitt foreldrum og öðrum umönnunaraðilum rými til að ræða eigin reynslu og áskoranir. Það kemur ekki í stað mats barnaverndarþjónustu eða annarrar nauðsynlegrar sérfræðiþjónustu.
Læknisráðgjöf
Hægt er að kanna möguleika á ráðgjöf hjá lækni sem kemur að starfi samtakanna. Þar má ræða heilsu, fyrirliggjandi lyfjanotkun og næstu skref. Ráðgjöfin felur ekki í sér að hefja, stöðva eða breyta lyfjameðferð eða taka við umsjón hennar. Það er von býður ekki afeitrun, fráhvarfsmeðferð, niðurtröppun eða viðhaldsmeðferð.
Viðtöl í gegnum Zoom
Einstaklingsviðtöl fara fram í gegnum Zoom. Þú þarft að hafa aðgang að Zoom og netsamband og gott er að velja rólegan stað þar sem þú getur talað í næði. Við förum yfir tengingu og fyrirkomulag við bókun. Samtökin eru ekki með fasta móttöku fyrir einstaklingsviðtöl.
Þjónustan er endurgjaldslaus
Öll þjónusta Það er von er endurgjaldslaus fyrir þau sem nýta hana. Þú þarft ekki að styrkja samtökin til að fá ráðgjöf eða taka þátt í stuðningsfundum.
Framlög einstaklinga og annarra stuðningsaðila standa undir þjónustunni. Umfang hennar og framboð á tímum ráðast af fjármögnun og getu samtakanna hverju sinni. Kynntu þér hvernig þú getur stutt starfið.
Stuðningsfundir fyrir aðstandendur
Stuðningsfundirnir eru ætlaðir aðstandendum fólks með fíknivanda, einnig þegar annar geðrænn vandi er til staðar samhliða fíkninni. Fundirnir hefjast yfirleitt á 20–30 mínútna fræðslu. Síðan gefst tími fyrir samtal, spurningar og speglun á grundvelli sambærilegrar reynslu. Þátttaka er endurgjaldslaus.
Fundartími: Mánudagskvöld kl. 20:00–21:30.
Staðsetning: Safnaðarheimili Grensáskirkju. Fundirnir hafa áður verið haldnir hjá Hjálpræðishernum, en núverandi fundarstaður er Grensáskirkja.
Þátttaka: Hægt er að taka þátt í gegnum fjarfundabúnað. Við hvetjum þau sem hafa tök á því til að mæta á staðinn.
Fundalotur yfir veturinn
Haustlotan hefst yfirleitt í ágúst og stendur fram undir jól. Eftir jólafrí hefst vorlotan í byrjun janúar og stendur að jafnaði fram í maí. Loturnar eru yfirleitt 12–16 vikur, en lengd og fjöldi funda geta breyst eftir fríum, forföllum og skipulagi hverju sinni.
Hafðu samband til að skrá þig, fá upplýsingar um næstu fundalotu eða aðgang að fjarfundi. Nákvæmar upphafs- og lokadagsetningar og breytingar á fundahaldi eru staðfestar fyrir hverja lotu.
Hvernig bóka ég tíma hjá fíkniráðgjafa?
Þú getur óskað eftir tíma hjá fíkniráðgjafa á vegum félagsins með því að senda tölvupóst á thadervon@thadervon.is eða einkaskilaboð í gegnum samfélagsmiðla Það er von.
Taktu fram að þú viljir bóka tíma hjá fíkniráðgjafa og hvort þú leitar ráðgjafar fyrir þig eða sem aðstandandi. Ekki er þörf á að lýsa persónulegum aðstæðum í smáatriðum í fyrstu skilaboðum. Við höfum samband til að finna tíma og fara yfir fyrirkomulag viðtalsins. Tíminn er bókaður þegar þú hefur fengið staðfestingu.
Einstaklingsviðtöl fara nú fram í fjarþjónustu.
Bóka viðtal hjá fíkniráðgjafaFræðsla sem þú getur nýtt strax
- Fíkn og bati
- Fræðsla fyrir aðstandendur
- Þegar barnið þitt er undir 18 ára
- Orðskýringar um fíkn, bata og meðferð
Tölvupóstur og bókuð ráðgjöf eru ekki neyðarþjónusta. Við bráða hættu skal hringja í 112.
Þjónustan tekur mið af því sem okkur er kleift að veita
Það er von hefur ekki enn tryggt þá stöðugu fjármögnun sem þarf til að halda þjónustunni í föstu umfangi. Við reynum því að sníða stakk eftir vexti og nýta það fjármagn sem aflast til að styðja fólk og fjölskyldur þess. Umfang þjónustunnar getur breyst eftir fjármögnun og getu samtakanna á hverjum tíma.
Aðstoð sem við höfum veitt í gegnum tíðina
Við höfum meðal annars aðstoðað fólk við að komast í meðferð með akstri til SÁÁ, Hlaðgerðarkots og Krýsuvíkur. Við höfum einnig í einstökum tilvikum greitt fyrir tímabundna gistingu á gistiheimili fyrir fólk sem beið eftir að komast í meðferð og átti ekki öruggt húsaskjól.
Þetta eru dæmi um aðstoð sem við höfum getað veitt þegar aðstæður og fjármagn hafa leyft. Þau fela ekki í sér að akstur eða gisting sé fastur þjónustuþáttur eða alltaf í boði. Hafðu samband til að kanna hvaða aðstoð er raunhæf hverju sinni; fyrirspurn þarf að fá staðfestingu áður en hægt er að treysta á aðstoð.