STARFIÐ Í DAG

Ráðgjöf, fræðsla og stuðningur.

Við leggjum áherslu á að veita fólki og fjölskyldum þess aðstoð sem nýtist í daglegu lífi.

01 / RÁÐGJÖF

Fíkniráðgjöf í fjarviðtali

Fíkniráðgjöf fyrir fólk með fíknivanda og aðstandendur. Einnig má kanna möguleika á samtali við reynslumikið fósturforeldri og læknisráðgjöf.

Kynna mér þjónustuna
02 / FRÆÐSLA OG TENGSL

Stuðningsfundir fyrir aðstandendur

Endurgjaldslaus fræðsla og samtal á mánudagskvöldum kl. 20:00–21:30 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Fjarþátttaka er einnig í boði.

Sjá fundalotur og skráningu
03 / AÐGENGILEG ÞEKKING

Fræðsla á þínum hraða

Gagnvirkt námsefni, sjálfstæðir fræðslukaflar og orðskýringar fyrir fólk með fíknivanda og aðstandendur þess.

Finna fræðslu
04 / OPIN UMRÆÐA

Samfélagsmiðlar og félagslegar forvarnir

Við miðlum fræðslu, reynslu og hvatningu til að vinna gegn fordómum og skömm, vekja von og auðvelda fólki að finna leið að stuðningi.

Af hverju skiptir þetta máli?
05 / VON UM JÓLIN

Persónuleg jólakveðja á áfangaheimili

Sjálfboðaliðar safna fyrir jólagjöfum, pakka þeim inn og skrifa jólakort til fólks sem er að byggja líf sitt upp í bata. Fjöldi gjafa ræðst af því sem safnast.

Kynnast Von um jólin