Tvær fræðsluleiðir á einum stað
Fíkn og bati er fræðsluleið fyrir fólk sem vill vinna að breytingum vegna fíknivanda. Aðstandendasvæðið er ætlað fólki sem stendur nærri einstaklingi með fíknivanda. Hægt er að lesa kaflana í röð eða velja viðfangsefni eftir þörfum.
Gagnvirkar æfingar
Spurningar og æfingar eru ætlaðar til ígrundunar og undirbúnings samtals. Þær veita ekki sjúkdómsgreiningu eða sjálfvirkt mat á meðferðarþörf. Svör eru ekki send til samtakanna. Vistun í vafra er valfrjáls og hægt er að eyða vistuðum svörum á fræðslusvæðunum. Notendur annast sjálfir varðveislu og eyðingu samantekta sem þeir sækja eða prenta.
Uppruni fræðslunnar
Fræðslan byggist á reynslu, ráðgjafarstarfi og samtölum um fíkn, bata og líf aðstandenda. Heimildir styðja við umfjöllunina. Lesa um uppruna, heimildir og takmarkanir fræðsluefnisins.
Aðstoð og samskipti
Upplýsingar um ráðgjöf og stuðningsfundi og leiðir til að hafa samband og óska eftir viðtali eru aðgengilegar hér á vefnum. Ráðgjöf og fræðsla á vefnum koma ekki í stað bráðaþjónustu.
Persónuvernd
Persónuverndarstefna félagsins lýsir meðferð upplýsinga vegna samskipta, ráðgjafar, framlaga og notkunar vefsins.
Ábendingar og leiðréttingar
Ábendingar um efni eða virkni vefsins má senda á thadervon@thadervon.is.
Landslagsmyndin á forsíðu er af Seljalandsfossi, fengin af Unsplash. Hún sýnir ekki starfsemi eða þátttakendur samtakanna.