Fræðsla og ígrundun koma ekki í stað einstaklingsbundins mats eða meðferðar.
Manneskjan á bak við fíknivandann
Hvort sem við notum orðið fíknivandi, fíkniröskun eða fíknisjúkdómur þurfum við að sjá manneskjuna og aðstoðarþörf hennar. Ekkert þessara hugtaka segir alla sögu einstaklingsins. Skoða þarf líkamlega og andlega heilsu, reynslu, tengsl og félagslegar aðstæður.
Fíkn tengist bæði efnum og hegðun
Fíknivandi getur tengst neyslu efna eða tiltekinni hegðun. Skaðleg og stjórnlaus mynstur geta meðal annars tengst áfengi, öðrum vímuefnum, fjárhættuspilum, klámnotkun eða áti. Þetta eru ekki allt sömu vandamál eða sömu greiningar. Átvandi þarf til dæmis viðeigandi mat og lausnin er ekki að hætta að borða. Hér skoðum við sameiginleg viðfangsefni, en aðstoð þarf að taka mið af hverjum vanda. Lestu nánar um áfengis- og vímuefnavanda og atferlisfíkn.
Algeng merki um fíknivanda
- Þú finnur fyrir sterkri löngun eða hugsar oft um neysluna eða hegðunina.
- Þér reynist erfitt að halda þig við þau mörk sem þú setur þér.
- Neyslan eða hegðunin tekur meira pláss í lífinu en þú vilt og heldur áfram þótt hún hafi neikvæð áhrif.
Fíkn getur birst í sterkri löngun, síendurteknum hugsunum og erfiðleikum við að stjórna neyslu eða hegðun þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar. Hjá sumum hefur hún veitt tímabundinn létti frá vanlíðan eða innra tómi. Hjá öðrum hefur hún byrjað í félagslegum aðstæðum, forvitni eða leit að ánægju. Engin ein skýring á við um alla.
Ólíkur ferill, ólíkar þarfir
Það sem virtist vera lausn getur smám saman orðið að sjálfstæðum vanda. Heilsan, skapið, samskiptin, fjármálin eða daglegt líf geta orðið fyrir áhrifum. Ferillinn og hraðinn eru mismunandi. Þú þarft ekki að missa allt áður en þú leitar aðstoðar.
Bati sem uppbygging lífsins
Hjá Það er von leggjum við áherslu á bata sem uppbyggingu jafnvægis í lífinu, bæði andlega, líkamlega og félagslega. Við vinnum fyrst og fremst með fólki sem vill hætta skaðlegri neyslu eða breyta hegðun sem er farin að stjórna lífi þess. Batinn felur líka í sér að finna aðrar leiðir til að mæta þeim þörfum eða þeirri vanlíðan sem neyslan eða hegðunin hefur tímabundið létt á. Markmiðið er að byggja líf sem viðkomandi vill lifa og getur tekist á við án þess að leita sífellt aftur í gamla mynstrið.
Fleiri þættir en viljastyrkur
Líkamleg, andleg og félagsleg aðstoð getur farið saman. Sjálfsvinna þarf ekki að fara fram í einrúmi. Ráðgjöf, viðeigandi lyfjameðferð, sálfræðimeðferð og jafningjastuðningur geta verið hlutar bata. Markmiðið er ekki að finna aldrei fyrir vanlíðan eða löngun, heldur að geta mætt henni með fleiri leiðum og stuðningi.
Viltu vinna með efnið?
Opnaðu gagnvirka kaflann til að skoða dæmi, ígrunda efnið og finna næstu skref. Skrifleg svör eru valfrjáls.
Opna æfingar: Að skilja fíkn og bataTengt efni og næstu skref
- Orðskýringar um fíkn, bata og tengsl
- Óska eftir endurgjaldslausri fíkniráðgjöf
- Sérstök leiðsögn vegna barna undir 18 ára
Heimildir og samhengi
Almennar heimildir að fræðsluleiðinni eru birtar undir „Um efnið, heimildir og takmarkanir“ á yfirlitssíðu Fíknar og bata. Einstök ígrundunarverkefni eru ekki stöðluð greiningarpróf.