Fræðsla og ígrundun koma ekki í stað einstaklingsbundins mats eða meðferðar.
Velkomin í fræðsluna
Þetta rými er fyrir þig sem átt einhvern nákominn sem glímir við fíknivanda eða annan geðrænan vanda. Hér má þín líðan fá athygli, hvort sem þú hefur sótt stuðningsfundi eða ert að kynna þér efnið í fyrsta sinn.
Fræðslan er í stuttum undirköflum með dæmum, æfingum og spurningum til ígrundunar. Þú getur hugsað svörin, skrifað hjá þér eða notað textareitina. Þú ræður hvort þú skrifar og getur sleppt öllum skriflegum æfingum.
Kaflarnir byggja hver á öðrum. Þú getur fylgt röðinni, tekið hlé og haldið áfram síðar. Ef þig vantar stuðning núna er alltaf hægt að velja „Fá stuðning“ í valmyndinni.
Ég má fara í gegnum efnið á mínum hraða.
Þín líðan skiptir líka máli
Áhyggjur af einhverjum nákomnum geta tekið mikið rými. Það getur reynt á svefn, einbeitingu, tengsl og daglegt líf. Reynsla fólks er ólík og þú þarft ekki að þekkja þig í öllu sem hér er lýst.
Byrjaðu á að taka eftir hvernig þér líður núna, án þess að þurfa að útskýra eða laga það strax. Kannski finnurðu fyrir þreytu, ótta, reiði, sorg eða létti yfir því að finna efni fyrir þig.
Fræðslan á að hjálpa þér að skilja betur og finna eigin leiðir. Það er líka í lagi að þurfa samtal eða persónulegan stuðning samhliða henni.
Ég má huga að því hvernig mér líður, líka þegar ég hef áhyggjur af öðrum.
Eitt viðráðanlegt skref
Þú þarft ekki að byrja á stóru verkefni eða erfiðustu minningunni. Veldu eitt lítið atriði sem gæti stutt þig í dag, svo sem að taka hlé, fá þér mat eða hafa samband við manneskju sem þú treystir.
Í næsta kafla færðu grunnskilning á fíknivanda og öðrum geðrænum vanda. Síðan skoðum við skömm og sektarkennd áður en við förum dýpra í æðruleysi, athygli, samskiptamynstur og mörk.
Ef efnið reynist þungt má gera hlé eða velja leið til stuðnings. Að nýta fræðsluna er ekki verkefni sem þú þarft að standa þig í.
Eitt lítið skref má vera nóg í dag.
Viltu vinna með efnið?
Opnaðu gagnvirka kaflann til að skoða dæmi, ígrunda efnið og finna næstu skref. Skrifleg svör eru valfrjáls.
Opna æfingar: Fyrstu skrefTengt efni og næstu skref
- Að þekkja meðvirkni og styðja án þess að taka yfir
- Orðskýringar um fíkn, bata og tengsl
- Finna aðstoð og stuðning
- Sérstök leiðsögn vegna barna undir 18 ára
Uppruni efnis
Inngangurinn byggist á markmiðum stuðningsfunda Það er von um fræðslu, jafningjastuðning og valdeflingu. Efnið er aðlagað fyrir sjálfsnám með áherslu á viðráðanleg fyrstu skref.