KAFLI 8 AF 15 · FRÆÐSLA
Mörk og að setja mörk
Hvernig átta ég mig á mörkunum mínum, hvað segi ég og hvernig stend ég við það?
Opna í fræðsluleiðinni Fara í æfingunaHvað vil ég vernda?
Mörk lýsa því hvað þú ert tilbúinn að taka þátt í, samþykkja eða bjóða og hvernig þú bregst við ef gengið er á þau. Þau geta snúið að líkama, líðan, tíma, peningum eða samskiptum. Til að geta staðið með mörkunum þarftu að skilja hvað þú vilt vernda og hvaða næsta skref er raunhæft fyrir þig.
„Hann talar bara svona.“ „Hún hefur alltaf verið svona.“ Ef þú hefur lengi vanist því að taka fyrst eftir líðan annarra getur tekið tíma að átta sig á því hvað særir þig eða veldur þér óöryggi. Þótt eitthvað hafi alltaf verið svona máttu vilja að það breytist.
Veldu eina stöðu. Hvað var sagt eða gert? Fannstu fyrir ótta, spennu eða líkamlegum óþægindum? Hættirðu að segja hvað þér fannst eða samþykktirðu eitthvað sem þú vildir ekki gera? Þú mátt setja mörk um virðingu, snertingu, næði, tíma, peninga, samskipti og öryggi á heimilinu.
Tilfinningaleg mörk og samkennd
Líðan annarra getur haft áhrif á okkur og það er eðlilegt að finna til með þeim. Stundum fer líðan okkar nær öll að ráðast af því hvernig öðrum líður.
Þú getur sýnt samkennd og hlustað án þess að taka að þér að laga allar tilfinningar hins aðilans. „Ég heyri að þetta er erfitt“ getur verið stuðningur, jafnvel þótt þú hafir enga lausn.
Prófaðu að greina á milli: Hvað er hinn aðilinn að upplifa? Hvað finn ég sjálf eða sjálfur? Hvað þarf ég núna? Þannig fá bæði samkennd og eigin líðan rými.
Ég má finna til með þér og um leið huga að eigin líðan.
Hvernig set ég mörk í samskiptum?
- Lýstu hegðuninni með einu skýru dæmi.
- Spurðu þig hvað þú vilt vernda.
- Veldu næsta skref sem þú getur sjálf eða sjálfur tekið.
- Æfðu orðalagið og fáðu stuðning ef þú þarft á honum að halda. Veldu minni aðgerð ef þú treystir þér betur til að standa við hana.
Þegar farið er yfir mörkin í samskiptum
Þú mátt biðja manneskjuna að hætta eða ljúka samtalinu. „Ég ætla að leggja á núna. Við getum rætt þetta síðar ef við getum talað saman af virðingu.“ Í samveru geturðu farið sjálf eða sjálfur eða beðið gest að fara ef það er öruggt. Ef þú óttast viðbrögðin eða verður fyrir hótunum skaltu setja öryggi í forgang. Við bráða hættu skaltu hringja í 112. Um andlegt ofbeldi og stuðning.
Þegar mörkin snúa að heimilinu
Þegar fullorðinn einstaklingur býr á sameiginlegu heimili má setja skýra reglu: „Við viljum að heimilið sé laust við vímuefni.“ Ræðið hvað reglan felur í sér, hverjir standa að henni og hvað þið getið raunverulega gert ef hún er brotin. Veljið viðbrögð sem þið treystið ykkur til að fylgja eftir og fáið ráðgjöf ef þau varða húsnæðisrétt eða breytingu á sambúð. Mörk og umönnun barns undir 18 ára þurfa sérstaka nálgun.
Regla um vímuefni á heimilinu getur verið einföld í orðum en erfið í framkvæmd. Ræddu við þá sem standa að ákvörðuninni, veldu rólega stund ef hægt er og segðu skýrt hvað er óheimilt. Ef framhaldið gæti falið í sér að sambúð ljúki skaltu fá viðeigandi ráðgjöf áður en þú setur fram þá afleiðingu.
Stattu með því sem þú segir
Ef þú segist ætla að ljúka samtalinu við áframhaldandi uppnefni, fylgdu því eftir þegar þú getur gert það örugglega. Þegar orð og verk fara saman veit hinn aðilinn betur við hverju er að búast og þú lærir að treysta eigin ákvörðunum. Ef þú nærð ekki að fylgja mörkunum eftir skaltu skoða hvað stóð í vegi. Þú getur tekið málið upp aftur, fengið stuðning eða valið skref sem þú getur staðið við.
Æfing: Settu þín mörk í orð
Opnaðu dæmi sem líkist þínum aðstæðum. Skrifaðu svo með þínum orðum. Svörin eru hvorki send né vistuð af vefnum.
Uppnefni í samtali
Ég vil vernda: Virðingu í samskiptum
„Ef þú heldur áfram að kalla mig nöfnum lýk ég samtalinu.“
Ég fylgi því eftir: Ég legg á eða fer úr samtalinu ef það er öruggt.
Símtöl á nóttunni
Ég vil vernda: Svefninn minn
„Ég ræði ekki peningamál á nóttunni. Við getum talað á morgun.“
Ég fylgi því eftir: Ég lýk símtalinu eða svara að morgni.
Áreiti í skilaboðum
Ég vil vernda: Frið og næði
„Ég ætla að hætta að svara skilaboðum í kvöld.“
Ég fylgi því eftir: Ég slekk á tilkynningum ef það er öruggt.
Samvera undir áhrifum
Ég vil vernda: Öryggi og líðan í samveru
„Ef þú ert undir áhrifum þegar við hittumst fer ég og við finnum annan tíma.“
Ég fylgi því eftir: Ég fer sjálf eða sjálfur. Ef um gest er að ræða get ég beðið hann að fara, sé það öruggt.
Beiðni um peninga
Ég vil vernda: Fjárhaginn minn
„Ég lána ekki peninga. Ég get hjálpað þér að skoða hvaða stuðningur er í boði.“
Ég fylgi því eftir: Ég millifæri ekki þótt beðið sé aftur.
Að taka yfir ábyrgð annarra
Ég vil vernda: Mín eigin verkefni og orku
„Ég hringi ekki í vinnuna fyrir þig. Þú þarft að hafa samband sjálf eða sjálfur.“
Ég fylgi því eftir: Ég læt viðkomandi sjá um símtalið.
Tími og eigin áætlanir
Ég vil vernda: Tímann minn
„Ég get skutlað þér á morgun ef við ákveðum tíma í kvöld.“
Ég fylgi því eftir: Ég held mínum áætlunum ef við náum ekki samkomulagi.
Snerting og líkamlegt rými
Ég vil vernda: Líkamlegt öryggi
„Slepptu hendinni á mér. Ég vil ekki að þú takir svona í mig.“
Ég fylgi því eftir: Ég færi mig frá ef ég get og leita aðstoðar eftir þörfum.
Óvænt heimsókn
Ég vil vernda: Næði heima hjá mér
„Ég vil að þú hringir áður en þú kemur í heimsókn.“
Ég fylgi því eftir: Ef um gest er að ræða get ég boðið annan tíma.
Vímuefni á heimilinu
Ég vil vernda: Öryggi á heimilinu
„Við erum ekki tilbúin að hafa vímuefni á heimilinu. Við viljum ræða hvað gerist ef þau koma hingað aftur.“
Ég fylgi því eftir: Við undirbúum næsta skref saman og leitum ráðgjafar ef sambúðin gæti þurft að breytast.