KAFLI 14 AF 15 · FRÆÐSLA

Óvissa og von

Að gefa voninni rými án þess að fresta öllu eigin lífi þar til aðstæður breytast.

Fræðsla og ígrundun koma ekki í stað einstaklingsbundins mats eða meðferðar.

Það sem ég veit og það sem ég veit ekki

Óvissa er að vita ekki hvernig eitthvað muni þróast eða fá ekki svör við því sem skiptir okkur máli. Þegar nákominn einstaklingur glímir við fíkn getur hún snúist um líðan hans, öryggi eða hvort hann muni þiggja aðstoð.

Skrifaðu hjá þér hvað þú veist og hvað þú óttast að gerist. „Ég hef ekki heyrt frá henni í kvöld“ er upplýsing. „Allt hlýtur að vera farið úrskeiðis“ er túlkun sem þarf ekki að vera staðreynd. Ef merki eru um hættu þarf auðvitað að bregðast við þeim.

Spurðu síðan hvað þú getur gert miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir. Við þurfum oft að velja næsta skref án þess að hafa vissu um alla niðurstöðuna.

Ég má segja: „Ég veit það ekki enn.“

Von og raunverulegar aðstæður

Hvað merkir von fyrir þig? Hún getur haft ólíka merkingu fyrir fólk og breyst eftir aðstæðum.

Við getum átt óskir um framtíðina og um leið horft á stöðuna eins og hún er í dag.

Vonin má rúma bæði óskir og raunveruleika.

Eigið líf á meðan

Hefurðu sett eitthvað í eigin lífi á bið þar til þú veist hvernig allt fer?

Veldu eitt sem má fá rými núna: hvíld, samveru, áhugamál eða stuðning.

Ég þarf ekki að leysa allt áður en ég hugsa um mig.

Viltu vinna með efnið?

Opnaðu gagnvirka kaflann til að skoða dæmi, ígrunda efnið og finna næstu skref. Skrifleg svör eru valfrjáls.

Opna æfingar: Óvissa og von

Tengt efni og næstu skref

Uppruni efnis

Fræðsluefni Það er von, byggt á stuðningsfundum, ráðgjafarstarfi og reynslu úr starfi félagsins. Framsetning, dæmi og æfingar eru aðlöguð fyrir sjálfsnám.